Fotbolti.net
18.10.20 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Mynd: Upphandleggurinn rangstæður - Jöfnunarmarkið ekki gilt

Sanabria er nýlega kominn aftur til Betis eftir eitt og hálft ár hjá Genoa.

Sanabria er nýlega kominn aftur til Betis eftir eitt og hálft ár hjá Genoa.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Betis tók á móti Real Sociedad í spennandi slag í spænska boltanum í dag.
Real Sociedad komst yfir undir lok fyrri hálfleiks og náðu heimamenn að setja knöttinn í netið skömmu eftir leikhlé en leikurinn stöðvaður af myndbandsdómgæsluteyminu.

Eftir dágóða stund var markið úrskurðað ógilt og rangstæða dæmd. Birt var skýringarmynd með dóminum þar sem sést að upphandleggur Antonio Sanabria var fyrir innan litlu tá aftasta varnarmanns Sociedad.

Munurinn var því ótrúlega lítill og eru margir Spánverjar hneykslaðir á því að markinu hafi ekki verið leyft að standa.

Á lokakaflanum blés Betis til sóknar og gerðu gestirnir út um leikinn með skyndisóknum sínum. Lokatölur urðu 0-3 og er Sociedad á toppi deildarinnar.

VAR freeze frame of Sanabria disallowed goal due to offside. Betis 0 - 1 Sociedad from r/soccer

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.