Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   sun 19. maí 2024 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gary O'Neil: Fáum ekki pening til að eyða í sumar
Mynd: Getty Images
Gary O'Neil, þjálfari Wolves, býst ekki við sérlega góðu sumri á félagsskiptamarkaðinum.

Úlfarnir þurfa að selja leikmenn til að kaupa inn nýja til að brjóta ekki fjármálareglur ensku úrvalsdeildarinnar.

Liðið hefur verið að gera flotta hluti undir stjórn Gary O'Neil sem tók við stjórn síðasta ágúst og er um miðja deild með 46 stig úr 37 umferðum.

„Við munum ekki fá pening til að eyða í sumar. Við erum með mikið af leikmönnum sem eru úti á lánssamningum og vonandi geta þeir komið til baka og hjálpað okkur eða verið seldir til að skapa smá fjármagn," sagði O'Neil í gær.

„Eigendurnir hafa lagt mjög mikinn pening í félagið á undanförnum árum og þeir eru ekki í stöðu til að halda því áfram. Þeir munu geta hjálpað til hér og þar en við munum ekki geta farið á markaðinn til að kaupa nýjan 40 milljón punda leikmann. Við þurfum að vera mjög sniðugir í sumar, það verður ákveðin áskorun.

„Sumir þjálfarar vilja ekki starfa undir þessum kringumstæðum því þeim finnst það erfitt en fyrir mitt leyti þá er ég mjög spenntur og fullur tilhlökkunnar. Ég veit að það geta orðið mjög erfiðar stundir framundan og við munum gera allt í okkar valdi til að gera góða hluti á næstu leiktíð."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner