Fotbolti.net
19.05.26 - 17:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liðband slitnaði en það styttist í Jónatan

Liðband slitnaði en það styttist í Jónatan
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Ingi Jónsson (1999), leikmaður Vals, hefur verið fjarri góðu gamni vegna meiðsla frá því snemma í síðasta mánuði vegna ökklameiðsla.

Jónatan meiddist í bikarleiknum gegn KR, meiðslin litu ekki vel út og eftir myndatöku kom í ljós að liðband í ökkla hefði slitnað og hann fékk einnig beinmar.
„Ég er að skána hægt og rólega," segir Jónatan við Fótbolta.net. „Það er erfitt að segja nákvæman tímaramma. Ég er að horfa í að geta spilað aftur eftir landsleikjahlé nema allt gangi rosa vel á næstu dögum," segir leikmaðurinn.

Valur hefur unnið fjóra af fyrstu sjö leikjum sínum í Bestu deildinni og situr í 5. sæti. Næsti leikur er útileikur gegn KA og eftir það er útileikur gegn KR og heimaleikur gegn Víkingi áður en landsleikjahléið tekur við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.