Maður dagsins á HM - Dýrkaði Neuer og vildi verða markvörður

Manzambi átti geggjaða innkomu.

Mynd: EPA

Ensk úrvalsdeildarfélög hafa áhuga á honum.

Mynd: EPA

Manzambi átti geggjaða innkomu.

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Hinn tvítugi Johan Manzambi kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk fyrir Sviss þegar liðið vann 4-1 sigur gegn Bosníu og Hersegóvínu í leik sem bauð upp á ótrúlegan lokakafla.
Miðjumaðurinn ungi er fullur sjálfstrausts eftir gott tímabil með þýska liðinu Freiburg. Ensk úrvalsdeildarfélög hafa áhuga á honum og hlutabréfin hækkuðu eftir innkomuna hans í gær. Talað hefur verið um áhuga frá Manchester United, Arsenal og Chelsea,

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Markaveisla og rautt spjald á rosalegum lokakafla
Ferill Manzambi hefði getað þróast á allt annan hátt. Í æsku var Manuel Neuer fyrirmynd hans og hann vildi verða markvörður. Hans uppáhalds svissneski landsliðsmaður var markvörðurinn Yann Sommer.
„Þegar ég var lítill vildi ég verða markvörður. Pabbi minn og bróðir minn voru ekki sammála mér," segir Manzambi.
Hann varð yngsti leikmaður í sögu HM til að skora tvennu eftir að hafa komið inn sem varamaður.
„Þetta var líklega mín besta stund á ferlinum til þessa. Við byrjuðum leikinn ekki vel og þurftum að vera þolinmóðir. En við erum gott lið og ég tel okkur hafa sýnt það," segir Manzambi.
Menn dagsins á HM:
„Þegar ég var lítill vildi ég verða markvörður. Pabbi minn og bróðir minn voru ekki sammála mér," segir Manzambi.
Hann varð yngsti leikmaður í sögu HM til að skora tvennu eftir að hafa komið inn sem varamaður.
„Þetta var líklega mín besta stund á ferlinum til þessa. Við byrjuðum leikinn ekki vel og þurftum að vera þolinmóðir. En við erum gott lið og ég tel okkur hafa sýnt það," segir Manzambi.
Menn dagsins á HM:

Ensk úrvalsdeildarfélög hafa áhuga á honum.

Mynd: EPA

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Tímaspursmál hvenær hann bætir metið

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Njótum töfranna á meðan við getum

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Kominn með sex milljónir fylgjenda eftir stórleikinn gegn Spáni

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Fagnaði ekki frábæru marki

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Fyrrum lærisveinn Heimis í essinu sínu

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Starfsmaður flugfélags á sinn þátt í sögunni

TENGT EFNI