Byrjunarlið KR og Stjörnunnar: Nýir leikmenn mæta til leiks hjá báðum liðum


Mynd: Stjarnan


Mynd: Stjarnan
KR tekur á móti Stjörnunni á Meistaravöllum í 15. umferð Bestu deildar karla í dag. Bæði hafa verið að sækja nýja leikmenn en búið er að opna félagsskiptagluggann og ljóst að menn muni þreyta frumraun sína fyrir sín nýju lið í dag. Byrjunarliðin eru komin inn og má sjá þau hér að meðan.
Óskar Hrafn gerir eina breytingu frá 5-2 sigrinum á ÍBV í síðustu umferð. Ástbjörn Þórðarson fer út úr liðinu en inn í hans stað kemur Gabríel Hrannar sem tók út bann eftir að hafa hlotið rautt spjald gegn Þór Akureyri. Jason Daði Svanþórsson er í leikmannahópi KR í fyrsta sinn en hann byrjar leikinn á bekknum.
Jón Þór gerir sex breytingar á sínu liði frá 2-2 jafnteflinu gegn FH í síðustu umferð. Þeir sem koma inn í byrjunarliðið í dag eru þeir Daníel Finns, Bjarki Hauksson, Sigurður Gunnar, Alex Þór, Árni Vill og Andri Rúnar. Ari Leifsson er á bekknum en hann og Árni Vill fengu leikheimild á dögunum og spila því sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna í dag.
Stjarnan komst auðvitað áfram í undankeppni Sambandsdeildarinnar og má því búast við að Jón Þór sé aðeins að hvíla menn fyrir komandi leiki þar. Birnir Snær og Emila Atlason eru á meðal þeirra sem eru á bekknum í dag en þeir eru lykilmenn í liði Stjörnunnar.
Byrjunarlið KR
- 12. Halldór Snær Georgsson (m)
- 7. Finnur Tómas Pálmason
- 9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
- 11. Aron Sigurðarson (f)
- 17. Luke Morgan Conrad Rae
- 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
- 23. Arnór Ingvi Traustason
- 26. Hrafn Tómasson
- 28. Hjalti Sigurðsson
- 45. Galdur Guðmundsson
- 77. Orri Hrafn Kjartansson
Byrjunarlið Stjarnan
- 12. Árni Snær Ólafsson (m)
- 3. Gustav Kjeldsen
- 7. Örvar Eggertsson
- 8. Jóhann Árni Gunnarsson
- 10. Daníel Finns Matthíasson
- 14. Bjarki Hauksson
- 24. Sigurður Gunnar Jónsson
- 29. Alex Þór Hauksson
- 32. Örvar Logi Örvarsson
- 94. Árni Vilhjálmsson
- 99. Andri Rúnar Bjarnason
