Fotbolti.net
19.10.19 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Líkleg byrjunarlið Man Utd og Liverpool

Líkleg byrjunarlið Man Utd og Liverpool
Canon

Mynd: Guardian

Klukkan 15:30 á morgun, sunnudag, leika Manchester United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Það hefur allt gengið upp hjá Liverpool sem er með fullt hús stiga á toppnum og átta stiga forystu.

Hjá Manchester United hefur hinsvegar verið mikið bras og liðið situr í 12. sæti, aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
David de Gea er að glíma við náravanræði og mun líklega ekki byrja hjá United. Þá er Paul Pogba frá vegna ökklameiðsla.

Aaron Wan-Bissaka, Anthony Martial og Luke Shaw eru allir tæpir hjá United og það sama á við um Jesse Lingard, Phil Jones, Diogo Dalot og Mason Greenwood sem hafa verið að glíma við meiðsli.

Alisson gæti snúið aftur í mark Liverpool eftir að hafa verið frá í tvo mánuði vegna kálfameiðsla.

Þá er Guardian með Joel Matip í líklegu byrjunarliði en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum.

Mohamed Salah mun væntanlega byrja þrátt fyrir að hafa fengið högg á ökkla gegn Leicester.

Hitað verður upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem verður á X977 í dag klukkan 12

Staðan í deildinni:

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.