Fotbolti.net
19.10.21 - 14:25
Elvar Geir Magnússon

Stefan Ljubicic: Veit að ég get spilað í toppliði

Auglýsing
Stefan Ljubicic er kominn í KR.

Stefan Ljubicic er kominn í KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

„Ég er mjög spenntur, þetta er stór klúbbur. Sá stærsti á landinu held ég," segir sóknarmaðurinn Stefan Ljubicic sem gekk í dag í raðir KR frá HK.

„Ég heyrði fyrst frá KR fyrir tveimur til þremur vikum. Þegar ég heyrði frá þeim var ég til í það. Mér finnst ég vera Pepsi deildar leikmaður allavega og HK féll. Ég er þakklátur HK, þeir gáfu mér tækifæri og félagið verður alltaf í mínu hjarta."

„Ég veit hvað ég get og ég veit að ég get spilað í toppliði á Íslandi. Ég er mjög ánægður. Ég er kominn í stóran klúbb og núna er bara númer eitt hjá mér að vinna bikara hérna."
Stefan gerði fjögurra ára samning við KR-inga en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.