19.10.26 - 16:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Eftirsóttur Mikael Máni á reynslu hjá Horsens

Mynd: Horsens

Mynd: Horsens
Grindvíkingurinn Mikael Máni Þorfinnsson er á reynslu hjá danska úrvalsdeildarfélaginu Horsens sem situr í 6. sæti Superliga.
Mikael mun æfa með U19 liðinu næstu tvær vikur. Í tilkynningu Grindvíkinga segir að Horsens hefur fylgst með honum um nokkurt skeið. Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er leikmaður Horsens.

TENGT EFNI
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
Mikael Máni er fæddur árið 2010 og var í risastóra íslenska slúðurpakkanum orðaður við félög í Bestu deildinni.
Hann hefur þegar spilað 14 leiki fyrir unglingalandsliðin og skorað í þeim tvö mörk.
Hann hefur þegar spilað 14 leiki fyrir unglingalandsliðin og skorað í þeim tvö mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð