Fotbolti.net
08.10.26 - 17:00
Kári Snorrason

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Hólmbert Aron er sterklega orðaður við heimkomu.

Hólmbert Aron er sterklega orðaður við heimkomu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin hefur göngu sína á ný um helgina eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Því er tilefni til að birta fyrsta slúðurpakkann úr íslenska boltanum þetta haustið.

Það er mikið af kjaftasögum í gangi, bæði hvað varðar þjálfara og leikmenn þó að fótboltasumarið sé ekki alveg búið.

Slúðurpakkinn er einungis til gamans og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected]
Besta karla
Víkingur R.
Víkingur er að skoða markmannsmálin og hefur augastað á Ásgeiri Orra Magnússyni, markverði Keflavíkur. Aðrir markverðir eins og Ólafur Örn Ásgeirsson (HK), Frederik Schram (Valur), Ásgeir og Lúkas Blöndal Petersson (Hoffenheim) hafa verið orðaðir við Víkina.

Ögmundur Kristinsson og Sveinn Aron Guðjohnsen eru með lausa samninga við Víking og óvíst hvort þeir verði áfram. Sveinn Aron skrifaði undir samning út árið í lok sumargluggans og líkur á að framherjinn vilji reyna aftur fyrir sér erlendis.

Tómas Orri Róbertsson er á óskalista Víkings og FH gæti fengið Jóhannes Kristinn Bjarnason á móti.

Björgvin Brimi Andrésson er í harðri samkeppni hjá Víkingi og gæti séð möguleika á stærra hlutverki annars staðar. Grótta vill halda honum og ÍA fylgist með stöðu hans.

Daði Berg Jónsson er sömuleiðis orðaður í burtu frá meisturunum. ÍA, Breiðablik og Valur eru félögin sem nefnd eru í tengslum við hann.

Markus Nakkim (Valur) er með lausan samning og hefur hann verið orðaður við Víking og ÍA.

Víkingur er að skoða framherjamálin hjá sér og er félagið orðað við þá Hólmbert Aron Friðjónsson, Emil Atlason og Stefan Alexander Ljubicic.

Óskar Borgþórsson hefur verið orðaður við Luton á Englandi og í sumar reyndu GAIS og Konyaspor að fá hann.

Hólmar Örn Eyjólfsson er að renna út á samningi hjá Val og gæti lagt skóna á hilluna. Hann hefur verið meðal annars orðaður við Víking, Þrótt og HK.

KR
Hrafn Tómasson (KR) er á blaði hjá félögum í skosku úrvalsdeildinni og ensku Championship deildinni.

Omar Sowe (ÍBV) verður leikmaður KR eftir tímabilið ef hann stenst læknisskoðun hjá félaginu.

KR hefur áhuga á Emil Atlasyni og hefur látið Stjörnuna vita af þeim áhuga.

Halldór Snær Georgsson gæti farið frá KR þar sem hann er númer tvö í goggunarröðinni og er Stjarnan meðal liða sem hafa áhuga á markverðinum.

Aron Þórður Albertsson er að renna út á samningi og gæti lagt skóna á hilluna í lok tímabils.

Stefán Árni Geirsson er að verða samningslaus, hann er með tilboð á borðinu en óvíst er hvort hann skrifi undir þann samning.

KR var með endurkaupsákvæði sem félagið nýtti sér þegar Óðinn Bjarkason var keyptur til baka frá Aftureldingu.

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (KR) er á láni hjá Þór og ólíklegt þykir að hann verði áfram hjá KR.

Þórður Einarsson er orðaður við þjálfarastarf hjá KR, hann var síðast yfirþjálfari yngri flokka hjá Þrótti.

Fram
Hólmbert Aron er líklega á leið heim og gæti snúið til baka í Fram og kæmi þar inn í stað Atla Þórs Jónassonar sem er á láni frá Víkingi. Fram hefur sömuleiðis áhuga á Emil Atlasyni og hefur látið Stjörnuna vita af áhuga sínum, líkt og KR.

Þá er önnur sviðsmynd að Fram reyni að kaupa Atla af Víkingi og/eða félagið fari á eftir Eiði Gauta Sæbjörnssyni hjá KR. Start í Noregi hafði áhuga á Eiði Gauta í sumar og þá er einnig áhugi frá Finnlandi á leikmanninum.

Kennie Chopart (Fram) er orðaður við Hobro í Danmörku en hann á ár eftir af samningi sínum og Fram vill gera lengri samning við fyrirliðann.

Fram er í bílstjórasætinu í baráttunni um Eystein Rúnarsson, leikmann Grindavíkur. Liðsfélagi hans hjá Grindavík, Mikael Máni Þorfinnsson, er einnig nafn á blaði í Úlfarsárdalnum.

Fram hefur áhuga á Aroni Lucasi Vokes en hann lék með ÍBV á láni frá Selfossi í sumar. Eyjamenn eru með forkaupsrétt á leikmanninum.

Magnús Ingi Þórðarson (Fram) var á láni hjá Þrótti á tímabilinu og óljóst hvort hann verði áfram hjá Fram þar sem samningurinn er að renna út.

Arnar Daníel Aðalsteinsson er sömuleiðis með lausan samning, hann mun að öllum líkindum framlengja í Úlfarsárdal en Valur hefur einnig sýnt áhuga en Arnar er í námi í Bandaríkjunum.

Fram hefur áhuga á Bjarti Bjarma Barkarsyni sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Aftureldingu. Miðjumaðurinn hefur einnig verið orðaður við Val og Breiðablik.

Israel Garcia er með lausan samning og gæti farið frá félaginu eftir tímabilið og er hann orðaður við Njarðvík, Vestra og Þór.

Kristófer Konráðsson er með lausan samning, Fram vill halda honum en það er líka áhugi frá öðrum liðum í Bestu.

Breiðablik
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) og Viktor Örn Margeirsson (Breiðablik) orðaðir við Val. Slúðrið á þá leið að annað hvort fari þeir eða þjálfarinn Ólafur Ingi Skúlason. Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) er sömuleiðis orðaður við Val.

Jökull Elísabetarson, Eiður Smári Guðjohnsen og Magnús Már Einarsson eru kostir nefndir í tengslum við Breiðablik kjósi félagið að gera þjálfarabreytingu.

Kristófer Ingi Kristinsson með lausan samning og vill fara aftur út í atvinnumennsku, Breiðablik vill halda honum og Valur hefur áhuga eins og áður. Langt er á milli þess sem Breiðablik hefur boðið Kristófer og því sem hann vill fá.

Blikar hafa áhuga á Mikael Mána Þorfinnssyni, leikmanni Grindavíkur en hann er eftirsóttur af félögum í Bestu og er einnig áhugi erlendis frá, m.a. í Danmörku.

Viðar Ari Jónsson er á leið heim og er Breiðablik meðal liða sem hafa áhuga á honum. Blikar hafa einnig augastað á Daða Berg Jónssyni, sem er orðaður frá Víkingi, og Bjarti Bjarma Barkarsyni, leikmanni Aftureldingar.

Hlynur Freyr Karlsson er á láni hjá Breiðabliki frá Brommapojkarna. Búist er við því að bæði Valur og Breiðablik reyni að kaupa U21 landsliðsmanninn sem uppalinn er hjá Blikum og lék vel með Val tímabilið 2023.

Jón Kristinn Elíasson (Víkingur Ó.) hefur verið að æfa með Breiðabliki og gæti orðið hluti af markmannsteymi félagsins; yrði þá varamarkvörður fyrir Anton Ara Einarsson.

Stefán Logi Magnússon gæti tekið við sem markmannsþjálfari hjá karlaliði Breiðabliks en hann hefur verið markmannsþjálfari kvennaliðsins og verður það áfram.

Reynsluboltarnir Kristinn Steindórsson, Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman eru að verða samningslausir hjá Blikum og orðið ljóst að Kiddi Steindórs fær ekki nýjan samning hjá Blikum.

Dagur Örn Fjeldsted er sömuleiðis með lausan samning hjá Blikum en hann er með tilboð á borðinu frá félaginu

ÍA
Lárus Orri Sigurðsson á ár eftir af samningi sínum við ÍA en slúðrað hefur verið um að hann verði mögulega ekki áfram.

Heimir Guðjónsson verður ekki áfram með Fylki og hefur hann verið orðaður við ÍA, orðrómur um að hann hafi þegar fundað með Skagamönnum.

ÍA er á eftir Tómasi Orra Róbertssyni en Víkingur hefur einnig áhuga á honum. Þá eru Skagamenn með augastað á Víkingunum tveimur, Daða Bergi Jónssyni og Björgvini Brima Andréssyni.

Markús Páll Ellertsson verður mjög líklega seldur erlendis í vetur. Hann hefur verið orðaður við Silkeborg, Lyngby Rosenborg og Thun.

Karl Ágúst Karlsson, leikmaður HK, er á óskalista ÍA og er búist við tilboði frá Skaganum í kantmanninn efnilega. Skagamenn eru jafnframt á höttunum eftir öðrum efnilegum leikmanni úr Kórnum, Bjarka Erni Brynjarssyni.

Mikael Máni Þorfinnsson er sömuleiðis leikmaður sem félagið hefur áhuga á en mikill áhugi er á Grindvíkingnum.

ÍA og Víkingur hafa bæði áhuga á Markus Nakkim sem er með lausan samning hjá Val.

Johannes Vall og Erik Tobias Sandberg eru að verða samningslausir hjá ÍA og munu yfirgefa félagið og þá er Rúnar Már Sigurjónsson að hætta. Rúnar vill starfa áfram innan fótboltans.

Birnir Breki Burknason, Breki Þór Hermannsson og Matthías Daði Gunnarsson léku allir á láni frá ÍA í sumar og gætu þeir allir yfirgefið félagið í vetur.

Keflavík
Þorsteinn Aron Antonsson gæti yfirgefið Kórinn í vetur og hefur heyrst að Keflavík horfi til hans.

Oumar Diouck, Bragi Karl Bjarkason og Freysteinn Guðnason, leikmenn Njarðvíkur, hafa verið á óskalista grannanna í Keflavík og buðu Keflvíkingar nýlega í bæði Freystein og Oumar. Valur hefur jafnframt áhuga á Freysteini og Oumar vill ekki fara til grannanna.

Ásgeir Orri Magnússon hefur átt mjög gott tímabil í marki Keflavíkur og er á blaði hjá félögum erlendis. Víkingur hefur einnig augastað á markmanninum.

Patrekur Aron Grétarsson (KFA) er fluttur suður og það er áhugi á honum frá meðal annars Keflavík.

Sindri Snær Magnússon, Nacho Heras, Ernir Bjarnason og Frans Elvarsson eru að renna út á samningi hjá Keflavík. Sindri Snær hefur verið orðaður við endurkomu til ÍR. Það þykir líklegt að Frans verði ekki áfram leikmaður liðsins eftir þetta tímabil.

Davíð Snær Jóhannsson er sömuleiðis orðaður við heimkomu en Keflvíkingurinn gæti endað í græna hluta Kópavogs.

Valur
Halldór Árnason vill endurnýja kynnin við Höskuld Gunnlaugsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Inga Kristinsson og Viktor Karl Einarsson. Þá er Kristinn Steindórsson sömuleiðis orðaður við félagið en hann er að yfirgefa Breiðablik.

Valur hefur mikinn áhuga á því að fá Sigurð Bjart Hallsson frá Spáni en ólíklegt þykir að hann haldi heim til Íslands í vetur.

Aron Snær Ingason var búinn að ná samkomulagi við Val áður en hann skrifaði undir nýjan samning hjá Þrótti.

Valur nýtti sér ákvæði í samningi Tuma Fannars Gunnarssonar við Fylki sem hægt var að nýta þar sem Fylkir komst ekki upp í Bestu deildina. Kaupverðið er því ekki talið hátt.

Dagur Orri Garðarsson er áfram á blaði hjá Zilina og Val og líkur á að hann fari erlendis í næsta glugga.

Valur er á meðal liða sem hafa áhuga á Daða Berg Jónssyni, Viðari Ara Jónssyni og Bjarti Bjarma Barkarsyni.

Hólmar Örn Eyjólfsson er samningslaus eftir tímabil og gæti lagt skóna á hilluna.

Albin Skoglund og Myles Veldman eru með lausan samning við Val en líklegt þykir að Skoglund verði áfram. Veldman verður að öllum líkindum ekki áfram hjá Val en gæti fengið annan samning á Íslandi. Markus Nakkim er sömuleiðis að renna út af samningi og gæti yfirgefið félagið.

Jóhann Árni Gunnarsson og Örvar Eggertsson, leikmenn Stjörnunnar, eru báðir orðaðir við Val og reyndi Valur að kaupa Örvar undir lok gluggans.

Hlynur Freyr Karlsson er á láni hjá Breiðabliki frá Brommapojkarna. Saminngur hans við sænska félagið rennur út í vetur og búist er við því að bæði Valur og Breiðablik reyni að festa kaupa á honum.

Ómar Björn Stefánsson (ÍA) er á óskalista Vals og reyndi félagið að kaupa hann í sumar. Valsmenn hafa einnig áhuga á Freysteini Guðnasyni (Njarðvík) og Jakobi Ocares Kristjánssyni (Þróttur).

Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV) er á blaði hjá Val, en hann þekkir vel til á Hlíðarenda þar sem faðir hans er í stjórn.

Oliver Sigurjónsson verður aðstoðarþjálfari Vals og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari. Þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Michael John Kingdon og Matthías Vilhjálmsson voru orðaðir við aðstoðarþjálfarastöðuna.

Logi Hrafn Róbertsson er orðaður við heimkomu frá Svíþjóð og gæti hann snúið aftur í FH en Valur hefur sýnt mikinn áhuga á honum í gegnum tíðina.

Valur hefur mikinn áhuga á Eysteini Rúnarssyni, leikmanni Grindavíkur, og er félagið í baráttu við Fram um leikmanninn.

Bjarni Þór Viðarsson er orðaður við starf yfirmanns fótboltamála hjá Val eftir að Gareth Owen hætti störfum.

Stjarnan
Heimir Guðjónsson verður ekki áfram við stjórnvölinn í Árbænum. Þjálfarinn er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Stjörnunni og sumar sögur eru á þá leið að það sé frágengið að hann verði næsti þjálfari Stjörnunnar.

Þrátt fyrir að hafa endursamið við Gróttu er Rúnar Páll Sigmundsson áfram orðaður við þjálfarastarfið í Garðabænum.

Bjarni Þór Viðarsson er orðaður við starf yfirmanns fótboltamála hjá Stjörnunni ásamt sömu stöðu hjá Val. Bróðir hans sinnir sama starfi hjá FH. Stjarnan ætlar að ráða mann í þá stöðu á næstu vikum, en Stjörnumenn hafa ekki verið með það stöðugildi áður.

Stjarnan á enn eftir að ráða í stöðu yfirþjálfara yngri flokka sem er nokkuð stórt starf í íslenska fótboltaheiminum.

Kristófer Konráðsson verður samningslaus eftir tímabil en Fram vill halda honum. Slúðrað hefur verið um mögulega endurkomu í Garðabæinn en það er líka áhugi frá öðrum liðum í Bestu.

Kantmaðurinn Theodór Ingi Óskarsson hjá Fylki er sömuleiðis á óskalista Stjörnunnar.

Viðar Ari Jónsson er á heimleið frá HamKam og er Stjarnan með hann á óskalista sínum. Þá hafa Garðbæingar sömuleiðis augastað á Hjörvari Daða Arnarssyni, markverði Grindavíkur.

Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV) er á óskalista Stjörnunnar. Hægri bakvörðurinn er uppalinn hjá Stjörnunni. Þá hefur félagið jafnframt áhuga á því að kaupa Aron Lucas Vokes frá Selfyssingum en hann lék á láni með ÍBV seinni hluta sumars. Selfyssingar vilja halda honum.

Andri Rúnar Bjarnason mun yfirgefa Stjörnuna þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

Árni Snær Ólafsson, Damil Dankerlui, Sindri Þór Ingimarsson og unglingalandsliðsmarkvörðurinn Ðuro Stefan Beic eru sömuleiðis með lausa samninga.

Fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson hefur þá tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna í lok tímabils. Svo er spurning hvort Árni Vilhjálmsson og Daníel Finns Matthíasson verði áfram í Garðabæ.

Halldór Snær Georgsson, markvörður KR, er orðaður við Stjörnuna skyldi Árni Snær Ólafsson yfirgefa Garðabæinn.

Þorri Mar Þórisson er með áframhaldandi samning við Stjörnuna en hann er orðaður við bæði KA og ÍBV.

FH
FH vill halda þeim Erlingi Agnarssyni og Jóhannes Kristni Bjarnasyni sem eru á láni hjá félaginu frá Víkingi.

Félagið vonast þá til að ná góðum sölum í vetur en félagið á þá Kjartan Kára Halldórsson, Baldur Kára Helgason og Tómas Orra sem eru góðar söluvörur og þeir Oliver Stefánsson, Ísak Óli Ólafsson og Jökull Andrésson hafa sömuleiðis átt gott tímabil.

Þeir Birkir Valur Jónsson, Grétar Snær Gunnarsson, Kristján Flóki Finnbogason, Arnór Borg Guðjohnsen, Allan Purisevic og Jóhann Ægir Arnarsson eru með lausan samning við FH.

Logi Hrafn Róbertsson er orðaður við heimkomu frá Svíþjóð og gæti hann snúið aftur í Hafnarfjörðinn.

FH hefur gert tilboð í Karl Ágúst Karlsson, efnilegan kantmann HK. ÍA er sömuleiðis á eftir honum.

FH hefur áhuga á Johannes Vall sem er að yfirgefa ÍA. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var þjálfari ÍA þegar Vall samdi við félagið.

Guðmundur Tyrfingsson er með lausan samning hjá Fylki og hefur FH áhuga á honum eins og áður. Jóhannes Karl þekkir vel til Guðmundar en hann stýrði honum hjá ÍA.

KA
Óljóst er hver mun stýra KA á næsta tímabili. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn og samdi út tímabilið og ólíklegt þykir að Hallgrímur Jónasson verði áfram þjálfari liðsins.

Einhverjar sögur eru um að Haddi gæti tekið að sér skrifstofustarf hjá KA, þá sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu og sömuleiðis er Haddi orðaður við Þór ef Þorparar kjósa að breyta til hjá sér.

Heimir Guðjónsson hefur verið orðaður við KA en háværari orðrómur er um að hann taki við Stjörnunni.

Það þykir ólíklegt að Adam Ægir Pálsson verði áfram á Akureyri þegar samningur hans við KA rennur út í lok árs.

Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, fer frá KA og verður mögulega spilandi aðstoðarþjálfari Magna.

Rodri, sem sleit krossband snemma sumars, gæti verið áfram hjá KA. Spánverjinn hefur verið lengi hjá félaginu og er öflugur í að miðla til yngri leikmanna.

Þorri Mar Þórisson er með áframhaldandi samning við Stjörnuna en hann er orðaður við KA.

Framtíð leikmanna hjá KA, Þór og ÍBV mun betur koma í ljós á næstu vikum þegar ljóst verður hvaða lið nær að halda sæti sínu í Bestu deildinni.

Þór
Einar Freyr Halldórsson (Þór) fer að öllum líkindum út í atvinnumennsku í vetur. Mörg félög erlendis hafa fylgst með honum og hann hefur verið orðaður við Rosenborg og Brann.

Þór hefur mikinn áhuga á Jakob Ocares Kristjánsson hjá Þrótti sem verður samningslaus í lok árs.

Kevin Vazquez og Isaac Atanga (Þór) verða áfram í Þorpinu. Yann Affi og Christian Greko Jakobsen hjá Þór eru með lausa samninga.

Varnarmaðurinn Affi verður ekki áfram hjá félaginu en Greko gæti framlengt veruna á Akureyri. Victor Bertomeu hefur ekki náð að heilla og verður ekki áfram hjá félaginu.

Unglingalandsliðsmaðurinn Ásbjörn Líndal Arnarsson er á blaði hjá félögum erlendis en tekur líklegast annað ár hjá Þórsurum.

Þórsarar eru með augastað á Israel Garcia sem rennur út af samningi hjá Fram eftir tímabil.

Skyldu Þórsarar ráðast í þjálfarabreytingar hefur nafn Hallgríms Jónassonar verið fleygt fram í þorpinu.

ÍBV
ÍBV hefur áhuga á að fá Hjörvar Daða Arnarsson aftur í búrið og hann á kærustu í Eyjum.

Arnór Ingi Kristinsson er á blaði hjá Val og Stjörnunni og gæti hann yfirgefið félagið í vetur. Omar Sowe er á förum frá Eyjamönnum standist hann læknisskoðun hjá KR.

ÍBV er með kaupákvæði í lánssamningi Arons Lucasar Vokes sem er á láni frá Selfossi.

Þorri Mar Þórisson er á óskalista Eyjamanna en hann er á áframhaldandi samning hjá Stjörnunni. KA horfir einnig til hans.

Afturelding
Það er hart barist um Bjart Bjarma Barkarson, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Aftureldingu. Líklegt þykir að hann haldi tryggð við Mosfellsbæinn en sagan segir að Afturelding hafi hafnað tilboði upp á 10 milljónir króna í kappann.

Nenni Þór Guðmundsson er sterklega orðaður við Aftureldingu. Hann er fæddur 2009 og skoraði þrjú mörk í 2. deild í sumar og tvö í .net bikarnum.

Sævar Atli Hugason og Joacim Holtan eru með lausa samninga og eru í viðræðum um nýjan samning.

Óvíst er hvort Birkir Már Sævarsson haldi áfram að spila en heyrst hefur að það sé áhugi á honum frá Lengjudeildarfélagi.

Þróttur
Þróttarar vilja fá Hólmar Örn Eyjólfsson sem er samningslaus eftir tímabil.

Viðar Ari Jónsson hefur verið orðaður við Þrótt eins og Aron Bjarnason og gætu þeir báðir snúið heim í Laugardalinn í vetur. Viðar lék í yngri flokkum með Þrótti en skipti ungur í Fjölni.

Þróttur vill halda Jakobi Ocares Kristjánssyni en félög í Bestu eru á höttunum eftir honum.

Varbergs sem er í toppbaráttu sænsku B-deildarinnar hefur áhuga á Brynjari Gauta Harðarsyni hjá Þrótti.

Lengjudeild karla
Fylkir
Heimir Guðjónsson (Fylkir) verður ekki áfram með Fylki á næsta tímabili. Hann er sterklega orðaður við Stjörnuna en líka ÍA og KA.

Eyþór Aron Wöhler íhugar að leggja skóna á hilluna og einbeita sér að tónlistarferlinum.

Nafn Arons Baldvins Þórðarsonar, aðstoðarþjálfara Víkings, er nefnt þegar rætt er um mögulegan mann í þjálfarastöðuna hjá Fylki en hann er með tengingar þangað.

Fylkir hefur mikinn áhuga á Patreki Aroni Grétarssyni (KFA) en hann er fluttur suður. Þá hafa Árbæingar einnig áhuga á Kristni Steindórssyni sem yfirgefur Blika eftir tímabil.

Guðmundur Tyrfingsson er með lausan samning hjá Fylki og það er áhugi á honum úr Bestu deildinni. Það er sömuleiðis áhugi á Kára Sigfússyni.

HK
Ólafur Örn Ásgeirsson er á blaði hjá félögum í Bestu og félag í efri hlutanum mjög áhugasamt.

HK-ingar hafa áhuga að fá Hólmar Örn, Orra Sigurð og Birki Val en þeir eru allir uppaldir hjá félaginu.

Þorsteinn Aron Antonsson og Karl Ágúst Karlsson eru báðir eftirsóttir og gætu yfirgefið félagið í vetur. Tumi Þorvarsson gæti einnig farið frá félaginu og í Bestu deildina.

HK hefur áhuga á Birni Breka Burknasyni sem er leikmaður ÍA, en hann er uppalinn í Kórnum. Kristinn Steindórsson er líka á blaði hjá HK.

Varnarmaðurinn Sigurjón Már Markússon sem spilað hefur með Njarðvík undanfarin ár er orðaður við HK.

Njarðvík
Gunnar Jónas Hauksson er farinn frá Vestra. Njarðvík vildi fá hann fyrir síðasta tímabil og líkur á að Davíð Smári reyni aftur að fá sinn fyrrum lærisvein.

Keflavík bauð nýlega í Oumar Diouck og Freystein Guðnason. Valur hefur jafnframt áhuga á Freysteini en Oumar vill ekki fara til grannanna.

Rafael Victor er með lausan samning og vonast til að fá samning hjá Njarðvík hvar hann var á láni seinni hluta tímabilsins.

Breki Þór Hermannsson (ÍA) er á óskalista Njarðvíkur en hann lék á láni með Vestra í sumar.

Njarðvík var með þá Stefán Gísla Stefánsson (Val), Viktor Nóa Viðarsson og Jóhann Ægi Arnarsson (FH) á láni í sumar og snúa þeir til baka til sinna félaga. Jóhann Ægir meiddist illa síðasta vetur og er með lausan samning hjá FH.

Israel Garcia (Fram) er með lausan samning og gæti farið frá félaginu eftir tímabilið og er hann orðaður við Njarðvík.

Sindri Þór Guðmundsson er án félags eftir að Grindavík féll og hægri bakvörðurinn er orðaður við Njarðvík.

Leiknir R.
Leiknir vill halda Birni Breka Burknasyni en hann var á láni hjá félaginu í sumar.

ÍR
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR, er samningslaus. Breiðhyltingar vilja ólmir framlengja við hann en Jóhann á eftir að skrifa undir nýjan samning.

Emil Nói Sigurhjartarson átti gott tímabil í sumar með ÍR og eru líkur á að hann fari í ÍR og það er áhugi á honum úr Bestu deildinni.

Sindri Snær Magnússon (Keflavík) hefur verið orðaður við endurkomu til ÍR en hann verður samningslaus eftir tímabil.

Grótta
Rúnar Páll Sigmundsson endursamdi við Gróttu en er engu að síður áfram orðaður við endurkomu í Stjörnunna.

Grótta vill halda Björgvini Brima Andréssyni sem lék með liðinu á láni frá Víkingi í sumar.

Vestri
Vestramenn vilja halda Breka Þór Hermannsyni sem lék með liðinu á láni frá ÍA í sumar.

Þá hefur félagið áhuga á Israel Garcia (Fram) sem verður samningslaus í vetur.

Þórður Gunnar Hafþórsson er að renna út á samningi og verður ekki áfram fyrir vestan.

Völsungur
Borja Martin hefur yfirgefið Völsung eftir að hafa náð að halda liðinu uppi í Lengjudeildinni. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Alli Jói, er orðaður við endurkomu til Völsungs. Hann er sagður hafa fengið samningstilboð frá Húsavík.

Grindavík
Mikael Máni Þorfinnsson, Hjörvar Daði Arnarsson og Eysteinn Rúnarsson eru eftirsóttir af félögum í Bestu deildinni og munu yfirgefa Grindvíkinga í vetur.

Gunnleifur Orri Gunnleifsson og Ingi Þór Sigurðsson voru keyptir til Grindavíkur síðasta vetur og spurning hvort þeir færi sig um set eftir fallið.

Selfoss
Matthías Daði Gunnarsson (ÍA) raðaði inn mörkum með Kára í 2. deild í sumar og er orðaður við Selfoss.

Dagur Jósefsson er undir smásjá félaga í Bestu deildinni en hann stóð sig vel með Selfyssingum í sumar.

Selfoss vill halda Aroni Lucasi Vokes sem lék seinni hluta tímabilsins á láni með ÍBV. Eyjamenn eru með kaupákvæði í lánssamningi Arons en Stjarnan, Valur og Fram hafa líka áhuga.

Tiago, fyrrum leikmaður Fram, gæti snúið aftur til Íslands og er talsverður áhugi frá Selfossi.

Filip Sabatti er farinn af landi brott en Selfyssingar vilja mikið halda markmanninum eftir öfluga frammistöðu í sumar.

Selfoss vill fá Stefán Þór Ágústsson frá Val, Aron Einarsson frá Njarðvík, Jón Vigni Pétursson frá Aftureldingu og Guðmund Þórarinsson, Gumma Tóta, frá ÍA.

Haukar
Haukar hafa, líkt og Selfoss, mikinn áhuga á Matthíasi Daða Gunnarssyni sem fór mikinn með Kára í 2. deildinni í sumar.

Miðvörðurinn Fede Russo og Pere Belmonte, tveir af bestu leikmönnum Kormáks/Hvatar, eru sterklega orðaðir við Hauka.

Slúðrið sem heyrist er að Pablo Punyed ætli að taka slaginn áfram með Haukum og spila með liðinu í Lengjudeildinni á næsta ári.

Bjarni Þór Hafstein og Árni Steinn Sigursteinsson eru orðaðir við Hauka en þeir riftu á dögunum við Fjölni. Orri Þórhallsson er einnig orðaður við Hauka.

Landslið
Líklegast þykir að Lúðvík Gunnarsson verði áfram þjálfari U21 landsliðsins eftir að hafa stýrt liðinu síðasta árið.

2. deild karla
Víkingur Ólafsvík
Jón Kristinn Elíasson, markvörður Ólsara hefur verið að æfa með Breiðabliki.

Ólsarar horfa áfram til Suðurlands eftir markmönnum og ætla fá Stefán Blæ Jóhannsson frá Árborg. Guðmundur Magnússon gæti tekið slaginn áfram fyrir vestan.

Magni
Steinþór Már Auðunsson mun yfirgefa KA og verður mögulega spilandi aðstoðarþjálfari Magna. Möguleg sviðsmynd er að Hrannar Björn Steingrímsson fari frá KA í Magna og verði spilandi aðstoðarþjálfari en bróðir hans, Guðmundur Óli, þjálfar Magna.

Bjarki Þór Viðarsson ætlar að kalla þetta gott og leggja skóna á hilluna.

Tindastóll
Tiago Assis gæti farið í efri deildir eftir að hafa spilað vel í sumar, hann skoraði sjö mörk og lagði upp fimm fyir Stólana í sumar.

Kormákur/Hvöt
Miðvörðurinn Fede Russo og Pere Belmonte, tveir af bestu leikmönnum Kormáks/Hvatar, eru sterklega orðaðir við Hauka.

Kári
Samningur Úlfs Arnar Jökulssonar við Kára er að renna út, hann gerði frábæra hluti með Kára í 2. deild á tímabilinu og eru félög í Lengjudeildinni að horfa til hans.

KFA
Patrekur Aron Grétarsson er fluttur suður og það er áhugi á honum frá m.a. Keflavík, Val, HK og mikill áhugi frá Fylki.

Það heyrist að Eggert Gunnþór Jónsson verði áfram spilandi þjálfari KFA, spili eins og skrokkurinn leyfi.

Þróttur Vogum
Félagið er í viðræðum við þjálfarann Auðun Helgason um áframhaldandi samstarf.

Dalvík/Reynir
Óvíst er hvort Hörður Snævar Jónsson stýri Dalvík/Reyni áfram en hann var að ljúka öðru tímabili sem þjálfari liðsins.

Höttur
Sæþór Ívan Viðarsson er að flytja austur og gæti farið í Hött og spilað þar með bróður sínum, Kristófer Páli.

Besta kvenna
Breiðablik
Það gustar aðeins um Ian Jeffs, þjálfara Breiðabliks, jafnvel þó svo að liðið sé á toppi Bestu deildarinnar og ekki alveg ljóst að hann verði áfram með liðið.

Margrét Brynja Kristinsdóttir (Valur) er orðuð við Breiðablik og það er líka áhugi á henni erlendis frá.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er orðuð við Breiðablik en ekki er útilokað að hún spili í Lengjudeildinni næsta sumar.

Hrafnhildur Ása Haraldsdóttir, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar, er undir smásjá félaga erlendis.

FH
Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Valur) er á óskalista FH-inga.

Þróttur
Þróttur hefur áhuga á Hrafnhildi Eik Reimarsdóttur og Emblu Fönn úr FHL en það hefur gengið vel hjá Þrótti undanfarið að fá leikmenn að austan. Það er meiri áhugi á Emblu úr Bestu deildinni.

Stjarnan
Stjarnan er að leita að nýjum aðstoðarþjálfara eftir að Orian Burzic yfirgaf félagið.

Grindavík/Njarðvík
Emma Phillips hjá Grindavík/Njarðvík er á óskalista Fram.

Fram
Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur) er orðuð við Fram en þar lék hún á yngri árum. Það er mikill áhugi á Bergdísi og mjög ólíklegt að hún verði áfram í Víkingi.

Emma Phillips hjá Grindavík/Njarðvík er á radar Framara.

Þór/KA
Halldór Jón Sigurðsson, Donni, er orðaður við starfið hjá Þór/KA og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson er orðaður við endurkomu til Völsungs karlamegin. Donni er án starfs eftir að hafa hætt hjá KSÍ.

Grótta
Arnfríður Auður Arnarsdóttir (Valur) gæti snúið aftur í Gróttu en FH hefur líka áhuga á henni. Tinna Brá Magnúsdóttir, markvörður Vals, gæti líka komið heim í Gróttu.

KR
Það er áhugi erlendis frá á Köru Guðmundsdóttur, efnilegasta leikmanni Lengjudeildarinnar, og er hún á leið á reynslu til Svíþjóðar

Lengjudeild kvenna
Valur
Valur er að skoða stöðuna eftir fall kvennaliðsins og þar á meðal eru þjálfaramálin. Óvíst er hvort Matthías Guðmundsson verði áfram með liðið. Ólafur Brynjólfsson hefur verið orðaður við Val.

Margrét Brynja Kristinsdóttir er orðuð við Breiðablik og það er líka áhugi á henni erlendis frá. Málfríður Anna Eiríksdóttir er líkleg til að taka slaginn áfram með Val þrátt fyrir fall liðsins.

Víkingur
Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur) er orðuð við Fram en þar lék hún á yngri árum. Það er mikill áhugi á Bergdísi og mjög ólíklegt að hún verði áfram í Víkingi. Markvörðurinn Telma Ívarsdóttir er eftirsótt af félögum í Bestu deildinni og verður væntanlega ekki áfram í Fossvoginum.

FHL
Þróttur hefur áhuga á Hrafnhildi Eik Reimarsdóttur og Emblu Fönn úr FHL en það hefur gengið vel hjá Þrótti undanfarið að fá leikmenn að austan. Það er meiri áhugi á Emblu úr Bestu deildinni.

Selfoss
Kristján Guðmundsson er í viðræðum við Selfoss um að taka við kvennaliði félagsins.

Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir er orðuð við heimahagana á Selfossi.

Tindastóll
Carlos Dominguez Requena verður ekki áfram með kvennalið Tindastóls Donni gæti snúið aftur og tekið við liðinu.

Fjölnir
Jasmín Erla Ingadóttir gæti snúið heim í Fjölni sem var að komast upp í Lengjudeildina.
Áhugi á Ásgeiri Orra að utan og úr Víkinni.

Áhugi á Ásgeiri Orra að utan og úr Víkinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tómas Orri á óskalista Íslandsmeistarana.

Tómas Orri á óskalista Íslandsmeistarana.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Rennur út af samningi í lok árs.

Rennur út af samningi í lok árs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur, KR og Fram á eftir Emil.

Víkingur, KR og Fram á eftir Emil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orðaður við félög í Championship-deildinni.

Orðaður við félög í Championship-deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe gengur til liðs við KR ef hann stenst læknisskoðun.

Omar Sowe gengur til liðs við KR ef hann stenst læknisskoðun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chopart orðaður við Hobro í Danmörku en Framarar vilja ólmir halda honum.

Chopart orðaður við Hobro í Danmörku en Framarar vilja ólmir halda honum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rennur út af samningi eftir tímabil.

Rennur út af samningi eftir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Höskuldur sterklega orðaður við Val.

Höskuldur sterklega orðaður við Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með lausan samning og vill fara aftur út.

Með lausan samning og vill fara aftur út.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Ari á heimleið.

Viðar Ari á heimleið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mikill áhugi á Mikael Mána.

Mikill áhugi á Mikael Mána.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvíst hvort að Lárus Orri verði áfram á Skaganum.

Óvíst hvort að Lárus Orri verði áfram á Skaganum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA á eftir Karli Ágústi.

ÍA á eftir Karli Ágústi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA og Víkingur hafa áhuga á Nakkim.

ÍA og Víkingur hafa áhuga á Nakkim.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík hefur áhuga á Þorsteini Aroni.

Keflavík hefur áhuga á Þorsteini Aroni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Snær orðaður við heimkomu.

Davíð Snær orðaður við heimkomu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Árnason horfir til Breiðabliks á leikmannamarkaðnum.

Halldór Árnason horfir til Breiðabliks á leikmannamarkaðnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búinn að ná samkomulagi við Val þegar hann framlengdi við Þróttara.

Búinn að ná samkomulagi við Val þegar hann framlengdi við Þróttara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hvað gerir Hólmar Örn?

Hvað gerir Hólmar Örn?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Þór er orðaður við stjórnunarstörf hjá bæði Val og Stjörnunni.

Bjarni Þór er orðaður við stjórnunarstörf hjá bæði Val og Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlynur er orðaður við bæði Val og Breiðablik. Hann er á láni frá Brommapojkarna.

Hlynur er orðaður við bæði Val og Breiðablik. Hann er á láni frá Brommapojkarna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ekki áfram í Árbænum og sagður taka við Stjörnunni.

Ekki áfram í Árbænum og sagður taka við Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Yfirgefur Stjörnuna eftir tímabil.

Yfirgefur Stjörnuna eftir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólíklegt að Árni verði áfram í Garðabænum.

Ólíklegt að Árni verði áfram í Garðabænum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Snær orðaður við Stjörnuna.

Halldór Snær orðaður við Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leggur skóna á hilluna eftir tímabil.

Leggur skóna á hilluna eftir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar vilja halda Jóa Bjarna.

FH-ingar vilja halda Jóa Bjarna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæti farið út í vetur.

Gæti farið út í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Tyrfings er samningslaus.

Guðmundur Tyrfings er samningslaus.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvíst hvernig þjálfarateymi KA mun líta út á næsta ári.

Óvíst hvernig þjálfarateymi KA mun líta út á næsta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam Ægir verður samningslaus eftir tímabil.

Adam Ægir verður samningslaus eftir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Freyr fer að öllum líkindum út í atvinnumennsku í vetur.

Einar Freyr fer að öllum líkindum út í atvinnumennsku í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Affi á förum frá Þórsurum.

Affi á förum frá Þórsurum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn vilja fá Hjörvar Daða aftur.

Eyjamenn vilja fá Hjörvar Daða aftur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas Vokes er eftirsóttur.

Aron Lucas Vokes er eftirsóttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búist er við því að Bjartur Bjarmi haldi tryggð við Mosfellsbæinn.

Búist er við því að Bjartur Bjarmi haldi tryggð við Mosfellsbæinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orðaður við Þrótt.

Orðaður við Þrótt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæti farið til Svíþjóðar.

Gæti farið til Svíþjóðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Baldvin orðaður við þjálfarastöðu Fylkis.

Aron Baldvin orðaður við þjálfarastöðu Fylkis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leggur Wöhler skóna á hilluna?

Leggur Wöhler skóna á hilluna?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ólafur Örn er spennandi markvörður.

Ólafur Örn er spennandi markvörður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK-ingar vilja fá Birki Val aftur heim í Kórinn.

HK-ingar vilja fá Birki Val aftur heim í Kórinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freysteinn Ingi er efnilegur og eftirsóttur.

Freysteinn Ingi er efnilegur og eftirsóttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Verður Jóhann Birnir áfram með ÍR?

Verður Jóhann Birnir áfram með ÍR?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll framlengdi nýverið við Gróttu.

Rúnar Páll framlengdi nýverið við Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orðaður við endurkomu á Húsavík.

Orðaður við endurkomu á Húsavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gætu margir yfirgefið Grindavík.

Gætu margir yfirgefið Grindavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snýr Tiago aftur til landsins?

Snýr Tiago aftur til landsins?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sagður taka slaginn áfram á næsta ári.

Sagður taka slaginn áfram á næsta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lúðvík hefur gert góða hluti með U21 liðið.

Lúðvík hefur gert góða hluti með U21 liðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hefur verið að æfa með Breiðabliki.

Hefur verið að æfa með Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á förum frá KA og á leið til Magna.

Á förum frá KA og á leið til Magna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í viðræðum við Vogana.

Í viðræðum við Vogana.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óvíst hvort að Hörður haldi áfram með Dalvík/Reyni.

Óvíst hvort að Hörður haldi áfram með Dalvík/Reyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gustar um Ian.

Gustar um Ian.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sú markahæsta eftirsótt.

Sú markahæsta eftirsótt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bergdís orðuð við Fram.

Bergdís orðuð við Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur féll niður í Lengjudeildina.

Valur féll niður í Lengjudeildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar á reynslu í Svíþjóð.

Efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar á reynslu í Svíþjóð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orðaður við Selfoss.

Orðaður við Selfoss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fer Jasmín til Fjölnis?

Fer Jasmín til Fjölnis?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.