Fotbolti.net
19.11.20 - 19:55
Victor Pálsson

Ramos missir af þremur leikjum

Ramos missir af þremur leikjum
Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid, mun missa af næstu þremur leikjum liðsins vegna meiðsla.
Þetta hefur spænska félagið staðfest en Ramos meiddist í leik spænska landsliðsins á dögunum. Liðið lagði Þýskaland sannfærandi 6-0 í Þjóðadeildinni.

Ramos fór af velli í fyrri hálfleik og tók Eric Garcia stöðu hans í hjarta varnarinnar í sigrinum.

Ramos er fyrirliði Real og einn mikilvægasti leikmaður liðsins en hann er meiddur aftan í læri og verður ekki klár í leiki gegn Villarreal og Alaves í deild og Inter Milan í Meistaradeild.

Varnarmaðurinn er 34 ára gamall og ætti að ná leik við Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni í næsta mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.