Fotbolti.net
20.01.21 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Enska úrvalsdeildin skoðar fjarveru Snodgrass

Robert Snodgrass spilaði sinn fyrsta leik fyrir West Brom í sigri gegn Wolves á laugardaginn.

Robert Snodgrass spilaði sinn fyrsta leik fyrir West Brom í sigri gegn Wolves á laugardaginn.

Canon

Mynd: Getty Images

Robert Snodgrass gekk nýlega í raðir West Bromwich Albion frá West Ham en hann var hinsvegar ekki í leikmannahópnum þegar liðin mættust í gær, West Ham vann þá 2-1 sigur.

Stóri Sam Allardyce, stjóri West Brom, sagði að félögin hefðu gert heiðursmannasamkomulag um að Snodgrass myndi ekki spila þennan leik.
Snodgrass var keyptur til West Brom en kom ekki á láni svo undir venjulegum kringumstæðum hefði hann mátt spila leikinn.

Enska úrvalsdeildin skoðar nú hvort reglur hafi verið brotnar.

„Við gátum bara klárað þessi félagaskipti með þessu samkomulagi," sagði Stóri Sam.

Í reglum ensku úrvalsdeildarinnar segir að ekkert félag eigi að gera samning sem geri öðru félagi möguleika á að auka möguleika sína á góðum úrslitum í leikjum.

West Brom er í erfiðum málum við botn ensku úrvalsdeildarinnar en West Ham hefur verið á flottu skriði og unnið alla leiki sína á almanaksárinu 2021.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.