Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. apríl 2019 18:26
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England: Ayoze Perez skoraði þrennu í sigri Newcastle
Newcastle sigraði Southampton.
Newcastle sigraði Southampton.
Mynd: Getty Images
Newcastle 3 - 1 Southampton
1-0 Ayoze Perez ('27 )
2-0 Ayoze Perez ('31 )
2-1 Mario Lemina ('59 )
3-1 Ayoze Perez ('86 )

Lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Newcastle og Southampton, þar voru fjögur mörk skoruð.

Heimamenn í Newcastle komust yfir á 27. mínútu þegar Ayoze Perez setti boltann í stöngina og inn, hann bætti við öðru marki sínu fjórum mínútum síðar. Staðan var því 2-0 fyrir Newcastle í hálfleik.

Gestunum í Southampton tókst að minnka muninn á 59. mínútu, Mario Lemina skoraði markið.

Það var svo Ayoze Perez sem gulltryggði sigur Newcastle með þriðja marki sínu undir lok leiksins, niðurstaðan því 3-1 sigur heimamanna í Newcastle.

Newcastle fer með sigrinum upp í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er nú með 41 stig. Southampton er ekki alveg sloppið frá fallbaráttuni, þeir eru fimm stigum frá fallsæti með 36 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner