Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 20. apríl 2026 13:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spilað á grasi í Keflavík - Búið að mála völlinn
Myndir af vellinum frá því í gær.
Myndir af vellinum frá því í gær.
Mynd: Aðsend
Mynd: Aðsend
Keflvíkingar taka á móti Breiðabliki á miðvikudag og verður spilað á grasi í 3. umferð Bestu deildarinnar. Spilað verður á HS Orku vellinum. Þetta staðfestir Jónas Guðni Sævarsson, yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík, í samtali við Fótbolta.net.

Á sama tíma, 18:00 á miðvikudag, átti að spila á grasvellinum á Akrenesi, ELKEM vellinum, en óvíst er hvar sá leikur fer fram. FH átti þá að spila heimaleik gegn Val á miðvikudag en félögin víxluðu heimaleikjum og mætast á Hlíðarenda á fimmtudag.

„Það er búið að merkja völlinn, slá hann og gera hann algjörlega kláran fyrir miðvikudaginn. Völlurinn er búinn að lagast mikið síðustu daga, það er hiti undir honum sem hefur verið í gangi í góðan mánuð. Þó að það hafi fallið snjór á völlinn þá hélst hann þannig lagað frostfrír. Við erum búnir að vinna statt og stöðugt í honum frá því að það var hægt," segir Jónas Guðni.

„Auðvitað er þetta ekki gervigras. Ég held þetta sé svipað eins og menn sáu Laugardalsvöllinn í landsleikjunum - það muni sjást nokkuð fljótt á vellinum þegar byrjað er að hlaupa á honum."

Keflvíkingar ætla sér að æfa á grasi í dag og á morgun fyrir leikinn. Keflavík er án stiga eftir fyrstu tvo leikina en Breiðablik er með fjögur stig.

3. umferð Bestu deildarinnar
miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (ELKEM völlurinn)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (Þórsvöllur)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Slapp
banner
banner
banner