Fotbolti.net
20.05.22 - 20:36
Victor Pálsson
Ítalska deildin

Ítalía: Roma tryggði sér sæti í Evrópudeildinni

Ítalía: Roma tryggði sér sæti í Evrópudeildinni
Canon

Mynd: EPA

Torino 0 - 3 Roma
0-1 Tammy Abraham ('33 )
0-2 Tammy Abraham ('42 , víti)
0-3 Lorenzo Pellegrini ('78 , víti)

Roma er búið að tryggja sæti sitt í Evrópudeildinni fyrir næstu leiktíð eftir lokaleik liðsins í Serie A í kvöld gegn Torino.

Roma þurfti á sigri að halda til að tryggja sætið en liðið var með 59 stig í sjötta sæti, stigi á undan bæði Fiorentina og Atalanta.

Það var litlu að keppa fyrir Torino í kvöld sem er í 10. sætinu en gat þó með sigri lyft sér sæti ofar.

Tammy Abraham átti frábæran leik fyrir Roma í kvöld en hann skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og eitt þeirra úr vítaspyrnu.

Abraham hefði getað bætt við þriðja markinu á 78. mínútu en þá steig Lorenzo Pellegrini á punktinn til að gulltryggja 3-0 sigur gestaliðsins.

Jose Mourinho og hans menn eru því á leið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og hafna í annað hvort fimmta eða sjötta sæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.