20.08.26 - 16:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ágúst Orri á leið til Hollands

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Orri Þorsteinsson er líklega á leið til hollenska félagsins Excelsior samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Breiðablik og Excelsior eru í viðræðum sín á milli um kaup hollenska félagsins á leikmanninum.
Starfsmenn hollenska úrvalsdeildarfélagsins voru mættir á leik Breiðabliks gegn Vals fyrr í þessum mánuði.
Fótbolti.net sóttist eftir viðbrögðum frá Ólafi Garðarssyni, umboðsmanni Ágústs, en hann vildi ekki tjá sig.

TENGT EFNI
Hollenskt úrvalsdeildarfélag fylgdist með Ágústi Orra
Ágúst Orri er 21 árs sóknarmaður sem uppalinn er hjá Breiðabliki en hefur einnig verið á mála hjá Genoa og Malmö á sínum ferli. Hann á að baki 32 leiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af tíu fyrir U21, og spilaði í febrúar sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætti Mexíkó í vináttúlandsleik.
Hann var sterklega orðaður við Rakow síðasta vetur en á endanum náðu félögin ekki saman. Ágúst á að baki 16 Evrópuleiki með Blikum og hefur á þessu tímabili skorað sex mörk og lagt upp fjögur í Bestu deildinni. Þá hefur hann skorað fjögur mörk í jafn mörgum bikarleikjum.
Á síðasta áratugi voru þrír Íslendingar á mála hjá Excelsior. Það eru þeir Elías Már Ómarsson, Ögmundur Kristinsson og Mikael Anderson. Liðið endaði í 13. sæti á síðasta tímabili og er með þrjú stig eftir tvo leiki á þessu tímabili.