Eiður kemur inn sem aðalþjálfari með Hadda - „Svo er staðan tekin í haust“
„Aldrei inni í myndinni að láta hann fara“

Skrifar undir samning út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Haddi vildi taka þennan slag og fá Eið með sér til að hjálpa félaginu okkar.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður hefur ekki verið í þjálfun frá því að hann var með FH fyrir fjórum árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er í 11. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Taka á móti KR á sunnudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður og Haddi léku þrjá landsleiki saman samkvæmt Transfermarkt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Aldrei inni í myndinni hjá okkur að láta hann fara.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA hefur unnið einn leik af síðustu tólf.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Sveinn Þórarinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ónotaður varamaður gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skrifar undir samning út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður mun fara norður síðar í dag og verður á fundi liðsins og mun hann stýra æfingum ásamt Hallgrími á morgun og laugardag. Fyrsti leikur liðsins eftir ráðningu Eiðs verður gegn KR á sunnudag.
Eiður hefur ekki verið í þjálfun síðan hann var með FH árið 2022. Hann var fyrst aðalþjálfari hjá FH 2020 og gerði þar góða hluti. Síðar varð hann aðstoðarmaður Arnars Þórs Viðarssonar með U21 landsliðið og aðstoðaði hann svo með A-landsliðið.
Fótbolti.net ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um ráðninguna á Eiði.

Eiður Smári í þjálfarateymi KA (Staðfest)
„Ég held að það sé ekkert launungarmál að við erum ekki alveg á þeim stað sem við hefðum viljað vera á. Svo fundaði stjórnin með Hadda um hvernig við sæjum verkefnið sem fram undan er. Haddi opnaði á það að það kæmi einhver í teymið með sér - að það þyrfti að gera einhverjar breytingar. Mér finnst það virðingarvert hjá honum að fá mann inn með sér,“ segir Sævar og heldur áfram.
„Í rauninni erum við öll sem erum á bakvið félagið að vinna að því markmiði að reyna að tryggja veru okkar í deildinni. Þegar það var ljóst var Eiður efstur á blaði hjá okkur og ég ræði við Eið.
Hann tók vel í þetta og það kom okkur skemmtilega á óvart. Hann vildi komast niður á völl og taka þátt í fótboltaæfingum - fannst þetta spennandi. Þetta gekk hratt fyrir sig eftir það. Þegar þú finnur fyrir áhuga frá báðum hliðum þá láta menn þetta oftast bara ganga upp.“
Auðveldari sala en hann bjóst við
Sævar segir söluna hafa verið auðveldari en hann bjóst við. „Við fundum það strax að hann hafði mikinn áhuga á þessu. En hann var vissulega búinn að lofa sér í þónokkur verkefni sem álitsgjafi; bæði hjá Sýn og erlendis. Það flæktist mest fyrir okkur en hann náði að hliðra því til þannig að þetta gekk upp,“ segir Sævar.
Eiður mun flytja norður en hann flýgur til Akureyrar síðar í dag. „Hann er að koma núna með kaffivélinni norður og verður hérna út tímabilið. Svo er staðan tekin í haust, hvar við sem félag erum.“
Allir leikmenn horft með aðdáunaraugum á Eið
„Ég held að allir sem hafa komið nálægt íslenskum fótbolta síðustu tvo áratugi viti hvaða karakter, reynslu og fótboltaþekkingu Eiður hefur. Ég á von á því að hann komi inn með öðruvísi sýn en hefur verið – hristi aðeins til í hlutunum.
Svo held ég að við fáum alltaf ákveðinn X-faktor með því að fá mann eins og Eið inn. Ég held að allir leikmenn okkar hafi horft með aðdáunaraugum á Eið síðustu 20 árin. Það vita allir hver hann er og hvað hann hefur gert. Ég held að það séu fyrst og fremst jákvæð skilaboð sem hann kemur með inn og mikil fótboltaþekking sem við erum að leita í. “
Báðir aðalþjálfarar
Í tilkynningu KA kom einungis fram að Eiður hafi verið ráðinn í þjálfarateymi KA. Sævar var spurður út í hvort hann væri aðstoðarþjálfari eða kæmi inn sem aðalþjálfari með Hallgrími.
„Þeir eru bara báðir aðalþjálfarar, þeir vinna þetta saman,“ segir Sævar.
Ekki margir sem myndu gera slíkt hið sama
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Hallgríms Jónassonar og er óhætt að segja að sæti hans hefur verið heitt undanfarnar vikur. Sævar var spurður hvort að það hafi einhvern tímann verið inni í myndinni að láta Hallgrím fara.
„Jú, auðvitað hefur það örugglega eitthvað verið rætt manna á milli en ég sem framkvæmdastjóri hef ekki verið inni í þeirri umræðu. Haddi hefur verið að vinna flott starf hjá okkur. Það hefur verið lítið í umræðunni að við erum með sjö leikmenn í langtímameiðslum allt tímabilið. Það hefur klárlega áhrif.
Við erum mjög ánægðir með hvernig Haddi hefur unnið fyrir félagið frá því að hann kom til okkar fyrir níu árum. Það var aldrei inni í myndinni hjá okkur að láta hann fara. Það segir mikið til um karakterinn hjá honum hvað er verið að gera í dag - að hann hafi stungið upp á því að fá mann inn með sér og að sá maður endi sem Eiður Smári. Ég er ekki viss um að margir þjálfarar myndu endilega fá svoleiðis karakter með sér inn.
Vitandi það að þú sért að fá stærsta nafn í sögu íslensks fótbolta og að hann eigi bara að vera með þér. Það hefur verið auðveldara fyrir hann að fá einhvern allt annan og minni karakter með sér inn. En Haddi vildi taka þennan slag og fá Eið með sér til að hjálpa félaginu okkar.“
Stígur til hliðar að eigin beiðn
Atli Sveinn Þórarinsson stígur til hliðar frá þjálfarateyminu en hann var ráðinn inn eftir síðasta tímabil. Atli mun halda áfram sem þjálfari 2. flokks KA og í afreksstarfi félagsins.
„Atli kom að fyrra bragði til okkar og óskaði eftir þessu vitandi að það væri að koma breyting á teymið. Við áttuðum okkur ekki alveg á því að hann er með 2. flokkinn hjá okkur, afreksstarfið og verið hjá meistaraflokknum líka.
Við erum með tvö lið í A-liðum í 2. flokki sem spila hvort um sig 27 leiki. Verandi líka með meistaraflokkinn þá var keppnistímabilið hjá Atla 90 leikja tímabil. Þegar þú býrð á Akureyri eru ferðalögin mörg og helgarnar langar. Kannski var þetta full djarft hjá okkur í upphafi tímabils að ætla einum manni að vera á svona mörgum leikjum. Hann mun einblína á 2. flokk og afreksstarfið,“ segir Sævar.
Djuric aldrei á förum
Mikið var rætt og ritað um framtíð Danijels Dejan Djuric undir lok gluggans. Hann var staddur á höfuðborgarsvæðinu og var hann orðaður við skipti frá KA. Sævar segir þó það ekki hafa verið inni í myndinni.
„Nei, bara aldrei. Þegar hann fór suður var hann að fara hitta fjölskylduna sína, það var frí hjá okkur. Upp úr því var einhver frétt að hann væri mættur suður. Hann var nú bara hjá foreldrum sínum og er leikmaður okkar. Það kom aldrei neitt tilboð eða fyrirspurn til okkar út af honum. Hann er leikmaður okkar og verður það áfram næstu árin vonandi,“ segir Sævar að lokum.

Sævar Pétursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Haddi vildi taka þennan slag og fá Eið með sér til að hjálpa félaginu okkar.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður hefur ekki verið í þjálfun frá því að hann var með FH fyrir fjórum árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er í 11. sæti deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Taka á móti KR á sunnudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður og Haddi léku þrjá landsleiki saman samkvæmt Transfermarkt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Aldrei inni í myndinni hjá okkur að láta hann fara.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA hefur unnið einn leik af síðustu tólf.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Sveinn Þórarinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ónotaður varamaður gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 19 | -5 | 23 |
| 8 | Stjarnan | 19 | -12 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 19 | -12 | 16 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
