Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 21. janúar 2021 16:20
Elvar Geir Magnússon
Ólafur Ingi nýr þjálfari U19 landsliðs karla og U15 kvenna (Staðfest)
Ólafur lék á sínum tíma 36 A landsleiki og skoraði í þeim eitt mark
Ólafur lék á sínum tíma 36 A landsleiki og skoraði í þeim eitt mark
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Ingi Skúlason hefur verið staðfestur sem nýr þjálfari U19 landsliðs karla og U15 landsliðs kvenna

Hann hættir störfum hjá Fylki til að taka við þessu starfi hjá KSÍ en hann var aðstoðarþjálfari karlaliðs Árbæjarfélagsins.

Hann tekur við U19 karla af Þorvaldi Örlygssyni sem lét af störfum og er tekinn við þjálfun Stjörnunnar við hlið Rúnars Páls Sigmundssonar.

Af heimasíðu KSÍ:
KSÍ hefur ráðið Ólaf Inga Skúlason sem nýjan þjálfara U19 landsliðs karla og U15 landsliðs kvenna og hefur hann þegar hafið störf.

Ólafur Ingi, sem er með KSÍ A þjálfaragráðu, lék á sínum tíma 36 A landsleiki og skoraði í þeim eitt mark, og hann var í hóp liðsins á HM 2018 í Rússlandi.

Á leikmannsferli sínum hefur hann einungis leikið með Fylki hér á landi, en lék erlendis um árabil með liðum eins og Helsingborg, Sonderjyske, Zulte Waregem, Genclerbirligi og Karabukspor.

Á síðastliðnu tímabili var hann Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi Stígssyni til aðstoðar með lið Fylkis í Pepsi Max deild karla.

KSÍ býður Ólaf Inga velkominn til starfa.
Athugasemdir
banner
banner
banner