Orri Steinn Óskarsson átti magnaða innkomu í 3-3 jafntefli Real Sociedad gegn Real Oviedo í efstu deild spænska boltans í dag.
21.02.2026 15:01
Spánn: Grátlegt jafntefli í ótrúlegri innkomu Orra Steins
Orra Steini var skipt inn af bekknum á 53. mínútu þegar gestirnir í liði Oviedo voru komnir með óvænta tveggja marka forystu.
Orri svaraði með því að minnka muninn ellefu mínútum eftir innkomuna og fullkomnaði hann svo endurkomu Real Sociedad á 90. mínútu, með því sem margir héldu að yrði sigurmarkið.
Það varð þó ekki raunin, því gestirnir náðu að gera jöfnunarmark í uppbótartíma og var Orri svekktur í viðtali að leikslokum.
„Ég er mjög pirraður útaf því að við vildum vinna leikinn en tókst það ekki. Við erum pirraðir með hvernig við spiluðum fyrri hluta leiksins útaf því að við vitum að við erum betri heldur en við sýndum," sagði Orri á spænsku.
„Undir lokin vorum við 3-2 yfir og í góðri stöðu til að vinna leikinn og það er ekki góð tilfinning að missa það niður útaf föstu leikatriði."
En hvað þarf liðið að laga við leik sinn?
„Við þurfum að ná upp betra tempói, eiga fleiri skot, taka fleiri hlaup í dýptina. Þetta er eitthvað sem allt liðið þarf að gera. Við áttum frábæran hálftíma í seinni hálfleiknum en það er ekki gott að fá þrjú mörk á sig úr föstum leikatriðum eins og gerðist í dag.
„Við fengum tækifæri til að vinna leikinn eftir að þeir jöfnuðu í 3-3 og þetta er erfitt útaf því að við búum yfir miklu meiri gæðum heldur en við erum að sýna."
21.02.2026 14:42
Sjáðu markið: Orri Steinn minnkaði muninn með þrumuskalla
Athugasemdir




