Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
banner
   þri 21. maí 2019 21:45
Orri Rafn Sigurðarson
Tinna Óðins: Vonbrigði ef ég á að segja eins og er
Kvenaboltinn
Tinna Óðinsdóttir í leik með HK/Víking
Tinna Óðinsdóttir í leik með HK/Víking
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
HK/Víkingur og Valur áttust við í Kórnum í kvöld í leik sem endaði með 4-0 sigri Vals.

„Vonbrigði ef ég á að segja eins og er fannst mér þetta of stórt tap." Sagði Tinna Óðinsdóttir fyrirliði HK/Víkings svekkt eftir leik.

Lestu um leikinn: HK/Víkingur 0 -  4 Valur

Valur átti í erfiðleikum með að opna vörn HK/Víkings en þær náðu að setja eitt mark í lok fyrri hálfleiks og í síðari hálfleik var vörn HK/Víkings mun opnari og það skilaði sér í 3 mörkum Vals.

„Við héldum skipulagi í fyrri hálfleik alveg eftir game plani en fengum svo sárt mark á okkur í lok fyrri hálfleiks. Við tölum um að koma alveg eins út í þann seinni en við missum dampinn í seinni hálfleik og við fáum það í bakið. Gott lið Vals nýtir sér mistök."

Það mætti tala um smá markaþurrð þegar kemur að sóknarleik HK/Víkings en þær hafa einungis skorað 1 mark í fyrstu 4.umferðunum og það er áhyggjuefni.

„Auðvita er ekki í lagi að við séum ekki að skora mörk og auðvita höfum við áhyggjur af því. Við vorum að fá framherja hérna og jú það eru fullt af leikmönnum í liðinu okkar sem geta skorað við þurfum bara setja það í hausinn á okkur að við getum skorað mörk."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan
Slapp
banner
banner