Daði Berg: Reynslunni ríkari núna


Mynd: Víkingur

Sölvi veit hvað hann er að gera með þetta lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Víkingur
Víkingur fer í heimsókn í Úlfarsárdalinn í kvöld í gríðarlega spennandi leik í 11. umferð Bestu deildar karla. Bæði lið koma á fljúgandi siglingu inn í leikinn en Víkingar hafa enn ekki tapað leik á leiktíðinni og Framarar hafa sótt 19 stig í síðustu sjö leikjum sínum í deildinni. Daði Berg Jónsson, leikmaður Víkings, sem sló í gegn með Vestra á síðustu leiktíð áður en hann meiddist, var í samtali við Fótbolta.net í aðdraganda stórleiksins.
„Liðið er í grunninn bara mjög vel þjálfað og kjarni leikmanna hefur verið til staðar í góðan tíma. Arnar byggði auðvitað mjög góðan grunn á hans tíma með liðið og Sölvi var partur af þeirri velgengni og síðan þegar hann tekur við liðinu vissi hann nákvæmlega hvað hann þyrfti að gera til að ná sem mestu út úr því,'' segir Daði berg.
Liðið er með sex stiga forskot á toppi deildarinnar og komið í undanúrslit í Mjólkurbikarnum og ljóst er að liðið að gera eitthvað rétt. Einnig eru Víkingar með mikla breidd og í hverri umferð eru frábærir leikmenn eftir utan hóps.
„Hópurinn er síðan bara stútfullur af gæðamiklum leikmönnum og það er gríðarleg sterkur kostur að geta haft hvaða menn sem er inni á vellinum og allir þekkja sitt hlutverk upp á tíu.''
Núna styttist í að Evrópuleikirnir fari að byrja og er það gífurlega mikilvægur kafli í tímabili Víkinga. Erfitt hefur reynst íslensku liðunum að ná langt í evrópuleikjunum ásamt því að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Daði minnist þess að Víkingar voru mjög nálægt því að vinna tvöfalt ásamt því að fara í Sambandsdeildina en tapa tveimur úrslitaleikjum eftir erfitt leikjaálag á löngum köflum.
„Við erum reynslunni ríkari og við ætlum okkur að berjast á öllum vígstöðvum og stefnum á að vinna allt sem okkur býðst,'' segir Daði Berg.
Viðtalið er hluti af pistli sem birtist 20. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að lesa pistilinn í heild sinni og skrá þig til leiks.

Sölvi veit hvað hann er að gera með þetta lið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð






