Fotbolti.net
21.06.26 - 21:22
Helgi Inguson

Hemmi svekktur: Ógnarsterk frammistaða

Auglýsing
Hermanni Hreiðarssyni þótti svekkjandi að liðið hafi ekki verið búið að ganga frá leiknum áður en Keflavík skoraði

Hermanni Hreiðarssyni þótti svekkjandi að liðið hafi ekki verið búið að ganga frá leiknum áður en Keflavík skoraði

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ógnarsvekktur með bara eitt stig, með úrslitin. En svakalega ánægður með sterka frammistöðu," sagði Hermann Hreiðarsson, þjáfari Vals, eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Keflavík.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Keflavík
Valur var betra liðið í dag og Hermann var skiljanlega svekktur með úrslitin þó frammistaðan hafi verið öflug.

„Við létum boltann ganga hratt og vorum hugrakkir og sköpuðum okkur fullt af færum. Við vorum öflugir í dag, héldum boltanum vel, strákarnir eiga hrós skilið og í heildina svekkjandi að taka ekki þrjú stig eftir svona frammistöðu.

Það er gríðarlega svekkjandi að refsa ekki betur en þetta fyrir þær stöður sem við komumst í bæði í skyndisóknum og líka áttum við marga frábæra spilkafla, þetta er einn af okkar betri leikjum í sumar. Það er bara engin spurning,"
sagði Hermann.

Valsarar tóku kraftmikil hlaup á bakvið vörn Keflavíkur. Var það eitthvað sem Hermann lagði sérstaklega upp með?

„Það var góð hreyfing á okkur, þeir ætluðu að pressa okkur en við náðum að leysa það vel og teygja vel á þeim. Þá myndaðist pláss aftan við þá, við nýttum það vel til að komast í stöður en eins og við vitum náðum við ekki að refsa nógu vel fyrir það. "

Jónatan Ingi Jónsson byrjaði sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir meiðsli. Það eru gleðifréttir fyrir Valsara en Jónatan Ingi hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar síðustu ár.

„Hann var geggjaður hérna í dag. Við erum augljóslega búnir að sakna hans í sumar en hann er einn af bestu leikmönnunum í deildinni og hann var frábær hér í dag. Ég vil líka hrósa Kristjáni Oddi sem spilaði fyrsta leikinn sinn í byrjunarliðinu, mér fannst hann stórkostlegur í dag," bætti Hermann við að lokum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.