Fotbolti.net
21.06.26 - 22:28
Helgi Inguson

Tryggvi Hrafn: Er að skoða hvaða möguleikar eru í boði fyrir mig

Auglýsing
Tryggvi Hrafn er ánægður að Jónatan Ingi sé mættur aftur inn á völl

Tryggvi Hrafn er ánægður að Jónatan Ingi sé mættur aftur inn á völl

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson var á skotskónum í 1-1 jafntefli Vals gegn Keflavík. Hann sagðist vera hundfúll með eitt stig úr leiknum í viðtali við Fótbolta.net eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Keflavík
„Við höldum vel í boltann og komumst í margar góðar stöður. Erum með mikið af sendingum og mikið með boltann en gerum oft illa þegar við erum komnir á síðasta þriðjung. Þeir eru í raun ekki að gera neitt, liggja til baka og reyna að sækja hratt. Það er eitt fast leikatriði í seinni hálfleik sem ræður úrslitum. Þeir jafna og við náum ekki að komast aftur almennilega á ról. Þannig að ég er svekktur með niðurstöðuna eftir hvernig leikurinn spilaðist," sagði Tryggvi um leikinn.

Valsarar voru duglegir að hlaupa á bakvið vörn Keflavíkur og mark Tryggva kom einmitt eftir slíkt hlaup.

„Mér fannst þeir furðu ofarlega í þessum leik. Það var mikið pláss á bakvið þá, sérstaklega þegar við unnum hann. Það er hættulegt að skilja eftir svona mikið pláss, Kobbi (Jakob Franz) kemur með góðan bolta og ég klára þetta fínt," sagði Tryggvi um markið sitt.

Viktor Jónsson, leikmaður ÍA, var í viðtali spurður út í Tryggva Hrafn sem hefur verið orðaður við Skagamenn. Þar sagði Viktor: „Tryggvi komdu heim." Var Tryggvi búinn að sjá fréttina?

„Ég sá fyrirsögnina. Ég þekki Viktor mjög vel sjálfur, hitti hann nánast daglega og við erum góðir félagar. En nei ég sá ekki viðtalið en sá fyrirsögnina. "

Er Tryggvi í samningaviðræðum við Val?
„Já ég er að skoða hvaða möguleikar eru í boði fyrir mig og svo sjáum til hvað setur."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.