Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
   mán 21. júlí 2014 22:15
Karitas Þórarinsdóttir
Þórður Þórðar: Stóðu sig vel á móti þessum trukkum
Kvenaboltinn
Þórður á hliðarlínunni hjá ÍA í sumar.
Þórður á hliðarlínunni hjá ÍA í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta var svekkjandi að fá ekki að minnsta kosti eitt stig úr úr leiknum í dag. Gríðarlega svekkjandi," sagði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA eftir 1-0 tap gegn Fylki í Árbænum í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  0 ÍA

,,Það eru miklar framfarir í leiknum í dag frá síðasta leik, það var fínt spil í dag, þorðum að halda boltanum og vorum þéttar. Við gerum í raun og veru bara ein mistök í 90 mínútur og það kostaði okkur mark því miður."

,,Við erum að reyna að færa okkur framar á völlinn. Við byrjuðum að byggja þetta betur aftast og erum að færa okkur framar á völlinn. Það kemur."

Næsti leikur liðsins er mikilvægur leikur gegn FH sem er líka í neðri hlutanum.

,,Þegar við spilum eins og við spiluðum í dag þá fáum við gott út úr næsta leik. Mér fannst ungu stelpurnar hjá mér standa sig vel á móti þessum trukkum hjá Fylki. Þær eru með massíft lið en mér fannst okkar lið spila betri fótbolta úti á vellinum. Það er þeirra taktík en ég var svekktur að fá ekki stig í dag."
Slapp
banner