Fotbolti.net
21.09.19 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Ronaldo og Ramsey björguðu Juve

Ítalía: Ronaldo og Ramsey björguðu Juve
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalíumeistarar Juventus rétt mörðu nýliða Verona er liðin mættust í dag. Leikið var á heimavelli Juventus.
Gestirnir komust yfir snemma leiks þegar Samuel Di Carmine steig á vítapunktinn. Spyrna hans fór í stöngina, liðsfélagi hans fylgdi eftir í slánna og skömmu síðar þrumaði Miguel Veloso knettinum í samskeytin með glæsilegu skoti utan teigs.

Aaron Ramsey var í byrjunarliði Juve í fyrsta sinn og gerði hann jöfnunarmarkið á 31. mínútu með góðu skoti utan teigs.

Cristiano Ronaldo kom Juve svo yfir með marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks. Juan Cuadrado fiskaði spyrnuna með góðu hlaupi upp hægri vænginn.

Gestirnir svöruðu fyrir sig og fengu góð færi en hinn 41 árs Gianluigi Buffon átti mjög góðan leik og varði vel.

Lokatölur 2-1 og er Juventus komið með tíu stig. Þetta er annar tapleikur Verona í röð og er liðið með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Juventus 2 - 1 Verona
0-1 Miguel Veloso ('21)
1-1 Aaron Ramsey ('31)
2-1 Cristiano Ronaldo ('49, víti)
Rautt spjald: Kumbulla, Verona ('90)

Nýliðar Brescia unnu þá sinn annan leik á tímabilinu er þeir heimsóttu Udinese.

Romulo gerði eina markið í bragðdaufum leik. Hann fékk mikið pláss til að athafna sig fyrir utan teig og lét vaða.

Brescia er með sex stig en Udinese er aðeins með þrjú eftir sigur í fyrstu umferð.

Udinese 0 - 1 Brescia
0-1 Romulo ('57)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.