Fotbolti.net
21.10.22 - 10:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

McAllister og fleiri yfirgefa Aston Villa - Danks stýrir leik helgarinnar

Gary McAllister er fyrrum leikmaður Liverpool.

Gary McAllister er fyrrum leikmaður Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur tilkynnt að nokkrir þjálfarar í þjálfarateymi félagsins hafi yfirgefið félagið eftir að tekin var ákvörðun um að reka Steven Gerrard úr starfi.

Gary McAllister, Neil Critchley, Tom Culshaw, Jordan Milsom og Scott Mason hafa allir yfirgefið félagið.
Aaron Danks, fyrrum aðstoðarframkvæmdastjóri Coventry City akademíunnar, stýrir liðinu þegar Brentford kemur í heimsókn á Villa Park á sunnudag. Danks kom hingað til lands árið 2008 og var þá þjálfari hjá knattspyrnuakademíu Íslands.

Mauricio Pochettino, Michael Beale, Thomas Frank, Sean Dyche og Unai Emery eru taldir fimm líklegustu stjórarnir til að taka við starfi Steven Gerrard á þessum tímapunkti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.