Fotbolti.net
21.11.19 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Leikmenn í Hollandi spila ekki fyrstu mínútuna - Barátta gegn fordómum

Elías Már Ómarsson og Ahmed Mendes Moreira.

Elías Már Ómarsson og Ahmed Mendes Moreira.

Canon

Mynd: Getty Images

Leikmenn í tveimur efstu deildunum í Hollandi ætla ekki að spila fyrstu mínútuna í leikjum helgarinnar. Þetta gera þeir til að vekja athygli á baráttunni við kynþáttafordóma.

Leikmenn ætla að standa kyrrir á vellinum og á stöðutöflunni á leikvöngunum mun standa: <i>„Kynþáttafordómar? Þá spilum við ekki fótbolta."</I>

Einni mínútu verður síðan bætt við í viðbótartíma í fyrri hálfleik í leikjunum.
Kveikjan að þessu átaki eru kynþáttafordómar sem Ahmad Mendes Moreira leikmaður Excelsior varð fyrir frá stuðningsmönnum Den Bosch um síðustu helgi.

Elías Már Ómarsson er liðsfélagi Mendes en hann tjáði sig um atvikið í viðtali á Fótbolta.net í gær..

Sjá einnig:
FC Den Bosch biðst afsökunar fyrir skelfileg viðbrögð
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.