Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. janúar 2022 08:30
Victor Pálsson
Mbappe ætti að vera númer eitt hjá Chelsea
Mynd: EPA
Kylian Mbappe ætti að vera forgangsatriði hjá liði Chelsea að sögn fyrrum leikmanns liðsins, Frank Lebeouf.

Mbappe er mjög líklega á förum frá Paris Saint-Germain í sumar en hann verður þá samningslaus í París og má ræða við önnur félög í janúar.

Einhver möguleiki er á því að Mbappe skrifi undir nýjan samning en draumur hans er þó að spila fyrir Real Madrid.

Lebeouf var beðinn um að nefna einn leikmann sem myndi styrkja Chelsea hvað mest og valdi þar fraska landsliðsmanninn.

„Kylian Mbappe. Hann verður samningslaus í sumar og þegar ég horfi á framherja þá er það leikmaður sem myndi breyta miklu fyrir Chelsea," sagði Lebeouf.

Chelsea keypti framherja í sumar eða Romelu Lukaku sem kostaði tæplega 100 milljónir evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner