Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
sunnudagur 17. maí
Besta karla
þriðjudagur 5. maí
mánudagur 4. maí
Lengjudeild karla
laugardagur 2. maí
Besta karla
Lengjudeild kvenna
Besta karla
sunnudagur 26. apríl
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
laugardagur 4. apríl
föstudagur 15. maí
Úrvalsdeildin
Aston Villa - Liverpool - 19:00
Vináttuleikur
Kyrgyzstan U-20 2 - 1 Turkmenistan U-20
Tajikistan U-20 - Afghanistan U-20 - 12:00
Toppserien - Women
Aalesund W - Honefoss W - 16:00
Bodo-Glimt W - Lillestrom W - 16:00
Haugesund W - SK Brann W - 16:00
Lyn W - Roa W - 16:00
Stabek W - Rosenborg W - 16:00
Valerenga W - Molde W - 16:00
Damallsvenskan - Women
Rosengard W - Kristianstads W - 16:30
Elitettan - Women
Alingsas W - Elfsborg W - 16:30
Hacken-2 W - Husqvarna W - 17:00
sun 22.feb 2026 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

UTAN VALLAR: KSÍ greiddi aðildarfélögum hátt í 107 milljónir króna á síðasta ári

KSÍ hefur birt ársreikninginn sinn fyrir árið 2025 í aðdraganda 80. ársþingsins sem fer fram á Egilstöðum þann 28. febrúar næstkomandi. Á næstu dögum verða birtar nokkrar greinar þar sem rýnt verður í tölurnar.

Greinin var einnig birt á utanvallar.is

Rekstrarafkoma KSÍ var tæplega 106 milljónir króna á síðasta ári en árið á undan, 2024, var rekstrarafkoman 55 milljónir króna og því er um að ræða 51 milljón króna sveiflu upp á við á milli ára. Frá árinu 2021 hefur uppsöfnuð rekstrarafkoma KSÍ verið jákvæð upp á 528 milljónir króna. Rekstrarafkoma knattspyrnusambandsins hefur verið jákvæð öll árin, að 2023 árinu undanskildu þegar rekstrartapið var 57 milljónir króna.

Þegar fjármagnsliðir og ráðstafanir til aðildarfélaga eru teknar með inn í reikninginn þá hefur uppsöfnuð afkoma KSÍ verið 53,3 milljónir króna síðustu fimm árin. Á síðasta ári hagnaðist KSÍ um 32,6 milljónir króna, tæplega 17,7 milljónum krónum meira en árið 2024 þegar hagnaður KSÍ var 14,9 milljónir króna. 

Þegar litið er á fjármagnsliðina má sjá að árið 2025 voru þeir jákvæðir upp á 33 milljónir króna. Það voru fjármunatekjurnar sem orsökuðu það en þær voru 37,6 milljónir króna á síðasta ári á meðan fjármagnsgjöld og gengismunur námu 4,4 milljónum króna.

Á tímabilinu 2021-2025 hefur KSÍ fengið 187,6 milljónir króna í fjármunatekjur en fjármagnsgjöld og gengismunur einungis verið 51,5 milljónir króna. Heilt yfir hefur KSÍ því fengið 136,1 milljón króna fyrir fjármagnsliði síðustu fimm árin.

KSÍ ráðstafaði 106,9 milljónum króna til aðildarfélaga á síðasta ári sem er 10 milljónum meira en árið 2024. Síðustu fimm ár hefur KSÍ ráðstafað 611,2 milljónum króna til aðildarfélaganna, tæplega 122,2 milljónir króna að meðaltali á ári.

Þar að auki er tekið fram í greinargerð sem fylgdi með ársreikningnum að ofan á þetta fengu til að mynda félögin í Bestu deild karla 397 milljónir króna frá UEFA vegna þróunarstarfs í knattspyrnu. Það eru rúmlega 33 milljónir króna á hvert félag. Þau átta félög í Bestu deild kvenna sem ekki tóku þátt í Evrópukeppni fengu einnig framlag frá UEFA, samtals 12,8 milljónir króna eða 1,6 milljónir króna á hvert félag.