Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mið 22. apríl 2026 08:13
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Botna ekkert í pirringi Linta - „Verður þá meira upp í stúku en við hliðarlínuna“
Linte og Óskar Elías Zoega.
Linte og Óskar Elías Zoega.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari.
Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var stórskrítið, það var ekkert í gangi og hann rýkur í dómarann," segir Valur Gunnarsson í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem rætt var um rauða spjaldið sem Aleksandar Linta þjálfari ÍBV fékk eftir tap gegn Val á föstudag.

Linta óð beint að Sigurði Hirti Þrastarsyni dómara eftir lokaflautið á Hlíðarenda þar sem Valur vann ÍBV 2-1. Rauða spjaldið fór á loft. Í stúkunni furðuðu menn sig á hegðun Linta enda var dómgæslan svo sannarlega ekki í aðalhlutverki í leiknum.

Linta verður í banni á morgun þegar ÍBV og KR mætast í Vestmanneyjum. Aðstoðarmaður hans Óskar Elías Zoega Óskarsson stýrir því liðinu frá hliðarlínunni.

„Við botnuðum ekkert í því hver væri ástæðan fyrir þessari reiði. Maður hélt að maður hefði misst af einhverju mómenti, Þetta var víst eitthvað uppsafnað, vildi fá einhver brot og vildi fá bakhrindingu í markinu hjá Hólmari. En það var ekki til í dæminu. Linsta missti stjórn á skapi sínu en það var engin ástæða til þess. Mögulega var þetta best dæmdi leikurinn í umferðinni," segir Elvar Geir Magnússon.

„Ef Linta er að missa sig út af þessu þá er hann að fara að vera meira upp í stúku en á hliðarlínunni í sumar."

Linta tók við ÍBV í vetur þegar Þorlákur Árnason lét óvænt af störfum. Eyjamenn eru með eitt stig eftir tvær umferðir en þeir gerðu jafntefli við FH í fyrstu umferð.

Þriðja umferðin í Bestu deildinni:

miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (Akraneshöllin)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl>
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 7 6 1 0 21 - 4 +17 19
2.    KR 7 6 1 0 27 - 13 +14 19
3.    Fram 7 4 2 1 20 - 13 +7 14
4.    Breiðablik 7 3 3 1 13 - 8 +5 12
5.    Valur 7 4 0 3 16 - 14 +2 12
6.    KA 7 3 1 3 9 - 9 0 10
7.    Keflavík 7 2 2 3 10 - 12 -2 8
8.    ÍA 7 2 2 3 9 - 14 -5 8
9.    Stjarnan 7 2 1 4 14 - 17 -3 7
10.    Þór 7 2 0 5 6 - 19 -13 6
11.    FH 7 0 2 5 12 - 20 -8 2
12.    ÍBV 7 0 1 6 6 - 20 -14 1
Slapp