Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. júlí 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Nýr sumarsmellur frá Memphis Depay
Mynd: Getty Images
Memphis Depay er nú búinn að gefa út nýjan sumarsmell sem ber heitið „Fall Back".

Depay hefur síðastliðin tvö ár látið til sín taka í tónlistinni ásamt því að vera ein helsta stjarna franska liðsins Lyon.

Það má ætla að hollenski landsliðsmaðurinn hafi nýtt sumarfríið í að taka upp myndband sem að fylgir laginu.

Depay hefur verið orðaður burt frá Lyon í sumar en ítalska félagið AC Milan er sagt áhugasamt um kappann.

Hér að neðan má hlusta á nýjasta lag Depay. Njótið!


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner