Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 22. ágúst 2020 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brynjólfur Willumsson spáir í 13. umferð Lengjudeildarinnar
Lengjudeildin
Brynjólfur í leik með Breiðabliki gegn Víkingi.
Brynjólfur í leik með Breiðabliki gegn Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sólon Breki Leifsson.
Sólon Breki Leifsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður Fylkis í Pepsi Max-deild kvenna, fékk fjóra rétta þegar hún spáði í 12. umferð Lengjudeild karla.

Brynjólfur Andersen Willumsson, sóknarmaður Breiðabliks í Pepsi Max-deild karla, tók að sér það verkefni að spá í 13. umferðina sem hefst í dag.

Leiknir F. 0 - 3 Fram (13:30 í dag)
Minn maður Aron Kári sér til þess að Framarar halda hreinu og setur hann líka eitt. Síðan skorar Unnar Steinn fallegt mark í fallegum sokkum og Þórir Guðjóns lokar leiknum með þriðja markinu.

Magni 0 - 2 ÍBV (14 í dag)
Gary Martin mætir með Pandagang grímu, í Pandagang sokkum og verður sjóðheitur. Hann setur tvö, finito.

Grindavík 1 - 1 Þór (14 í dag)
Verður hörkuleikur, stál í stál. Hilmar McShane skorar fyrir Grindavík og þetta endar 1-1.

Afturelding 1 - 3 Keflavík (16 í dag)
Keflavík klárar þennan leik sannfærandi. Blikinn Jason Daði nær í eitt sárabótarmark fyrir sína menn.

Vestri 0 - 1 Víkingur Ó. (14 á morgun)
Brynjar Atli verður í stuði í markinu hjá Ólsurum og læsir búrinu. Gonzalo setur sigurmarkið.

Leiknir R. 4 - 0 Þróttur R. (16 á morgun)
Leiknismenn verða í stuði. Hjalti stýrir spilinu og mínir menn Sólon Breki og Sævar Atli sjá um að skora mörkin.

Fyrri spámenn:
Pétur Theódór Árnason (5 réttir)
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (4 réttir)
Jón Arnar Barðdal (3 réttir)
Sveindís Jane Jónsdóttir (3 réttir)
Anna Björk Kristjánsóttir (2 réttir)
Hörður Ingi Gunnarsson (2 réttir)
Lucas Arnold (2 réttir)
Óskar Smári Haraldsson (2 réttir)
Hrafnkell Freyr Ágústsson (1 réttur)
Nikola Dejan Djuric (0 réttir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner