„Fabinho getur spilað í þessari stöðu og hann kann vel við það," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 1-0 útisigurinn á Ajax í gær.
Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho lék við hlið Joe Gomez í hjarta varnarinnar í fjarveru Virgil van Dijk og Joel Matip.
Fabinho átti frábæran leik en í þeim fimm leikjum sem hann hefur spilað í vörninni hjá Liverpool hefur liðið fjórum sinnum haldið hreinu.

„Ég er ekki hissa á að hann spilaði vel þarna og við hugsuðum ekki um aðra lausn á þessu, það hefði verið mjög flókið," sagði Klopp um meiðslavandræðin í vörninni.
„Ég er mjög ánægður með hann og fyrir hans hönd. Þetta gefur honum sjálfstraust og hjálpar okkur. Hann var góður en hann getur spilað ennþá betur!"
Athugasemdir