Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 22. nóvember 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía í dag - Hvað gerir Zlatan gegn Napoli?
Það er frábær dagur framundan í ítalska boltanum og margir góðir leikir sem fara fram en Napoli mætir Milan í stærsta leik helgarinnar á Ítalíu.

Andri Fannar Baldursson og hans menn í Bologna heimsækja Sampdoria á meðan Inter mætir Torino.

Roma spilar við Parma og þá fer öflugt lið Sassuolo í heimsókn til Hellas Verona.

Í kvöld er svo stórleikur Napoli og Milan. Gennaro Gattuso og hans menn í Napoli eru með 14 stig og geta með sigri jafnað Milan á toppnum en það má búast við hörkuleik og verður fróðlegt að sjá hvað hinn 39 ára gamli Zlatan Ibrahimovic gerir gegn Gattuso, en þeir voru samherjar hjá Milan.

Leikir dagsins:
11:30 Fiorentina - Benevento
14:00 Inter - Torino
14:00 Roma - Parma
14:00 Sampdoria - Bologna
14:00 Verona - Sassuolo
17:00 Udinese - Genoa
19:45 Napoli - Milan
Athugasemdir