Watford mætir með varalið gegn Tranmere
Wolves tekur á móti Liverpool í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool trónir á toppi deildarinnar með þrettán stiga forystu og tvo leiki til góða á meðan Úlfarnir eru baráttu við Manchester United og Tottenham um Evrópusæti.
Bæði lið mæta óbreytt til leiks eftir sigra í síðustu umferð. Heimamenn unnu Southampton á útivelli eftir að hafa lent 2-0 undir á meðan Liverpool hafði betur gegn Manchester United.
Wolves: Rui Patricio, Dendoncker, Coady, Saiss, Doherty, Moutinho, Neves, Jonny, Traore, Neto, Jimenez
Varamenn: Ruddy, Boly, Gibbs-White, Diogo Jota, Giles, Kilman, Ashley-Seal
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson, Henderson, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain, Mane, Salah, Firmino
Varamenn: Adrian, Fabinho, Minamino, Origi, Matip, Jones, Williams
Watford heimsækir þá Tranmere Rovers í enska bikarnum. Liðin gerðu 3-3 jafntefli á heimavelli Watford eftir að úrvalsdeildarfélagið hafið komist í 3-0 fyrir leikhlé.
Nigel Pearson teflir fram varaliði og gefur öllum sínum helstu leikmönnum hvíld. Sigurvegarinn mætir Manchester United í næstu umferð.
Watford: Bachmann, Barrett, Spencer-Adams, Kabasele, Holebas, Whelan, Dele-Bashiru, Quina, Hungbo, Joao Pedro, Gray
Varamenn: Dahlberg, Balogun, Janjeva, Hinds, Wise, Bennetts, Dalby
Athugasemdir