Fotbolti.net
23.02.20 - 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Zidane: Algjört klúður

Zidane

Zidane

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid fór illa að ráði sínu í gærkvöldi þegar þeir heimsóttu Levante.
Leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna sem fóru upp í 10. sætið með sigrinum en á sama tíma settu þessi úrslit strik í reikninginn fyrir gestina sem eru í toppbaráttu við Barcelona.

„Í dag náðum við ekki að gera það sem skiptir mestu máli í fótbolta, að skora mark. Þetta er algjört klúður því við erum núna búnir að tapa fimm stigum á stuttum tíma en svona er fótboltinn stundum," sagði Zidane knattspyrnustjóri Real Madrid

Það er stórt verkefni framundan hjá Zidane og lærisveinum hans í Meistaradeildinni í vikunni en mótherji þeirra í 16-liða úrslitum keppninnar er Manchester City.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.