Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
   fim 23. júlí 2020 21:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristinn Freyr: Leið síðast svona vel þegar ég var 23 ára
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Freyr Sigurðsson var á skotskónum annan leikinn í röð þegar Valur vann 3-0 sigur gegn Fylki á heimavelli í Pepsi Max-deildinni.

„Auðvitað er ég ánægður með stigin þrjú. Það var stefnan fyrir leikinn að ná í þau og mjög ánægjulegt að ná þeim," sagði Kristinn Freyr í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  0 Fylkir

„Við sköpuðum fullt af færum, en ég verð að hrósa Fylkisliðinu. Þeir eru með frábært lið og eru mjög erfiðir."

Kristinn Freyr var ekki í byrjunarliði í upphafi móts en er búinn að vinna sér sæti í liðinu. Hann segist vera í mjög góðu líkamlegu standi. „Það er frábært að vera kominn inn á völlinn og ég reyni að hjálpa liðinu að vinna leiki. Núna þurfum við að ná stöðugleika og þá gæti þetta orðið skemmtilegt sumar."

„Síðast þegar mér leið svona vel í líkamanum þá var ég bara 23 ára. Ég get ekki annað en verið bjartsýnn og jákvæður á sumarið. Vonandi næ ég halda mér frá meiðslum og hjálpa liðinu."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner