23.07.26 - 13:15
Elvar Geir Magnússon
Víkingur lánar Þorra í Þór (Staðfest)

Þorri Ingólfsson er kominn í Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri (til hægri) í leiknum gegn Þór á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þorri Ingólfsson er kominn í Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorri Ingólfsson hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum Víkings til Þórs á Akureyri út tímabilið. Þorri er fæddur árið 2009, verður 17 ára síðar í sumar.
Þorri skrifaði undir sinn fyrsta samning við Víking árið 2024 og hefur verið partur af meistaraflokknum í töluverðan tíma.
„Þorri er ótrúlega flottur drengur, getur spilað allar stöður í framlínu og hefur meira að segja leyst bakvörðinn á einhverju stigi málsins þó að við horfum ekki á hann sem slíkan. Hann er tæknilega góður og útsjónarsamur með góð hlaup og mikinn hraða. Nú þarf hann að fá aðeins fleiri mínútur og valdi hann að fara á láni til Þórs," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, við miðla félagsins.
„Það verður gaman að fylgjast með honum í sumar, svo kemur hann aftur heim í Hamingjuna þegar tímabilinu lýkur."
Hann hefur leikið 16 leiki fyrir yngri landslið Íslands og gert tvö mörk. Fyrsti leikur Þorra í byrjunarliði Víkings var síðastliðinn laugardag gegn einmitt Þór á Akureyri, þar sem Þórsarar unnu 2-1.
Þrátt fyrir sigurinn er Þór enn í neðsta sæti Bestu deildarinnar. Liðið hefur styrkt sig í glugganum og fengið Aron Einar Gunnarsson heim og Gyrði Hrafn Guðbrandsson lánaðan frá KR. Þórsarar leika grannaslag gegn KA á mánudag.