Byrjunarliðin í Miðgarði: Fjórar breytingar eftir þjálfaraskiptin


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Stjörnunnar gegn Þór í 20. umferð Bestu deildar karla hefst á eftir klukkan 17:00. Leikurinn fer fram í Miðgarði, ekki á Samsung vellinum. Byrjunarliðin hafa verið birt en þau má sjá hér fyrir neðan.
Nýtt þjálfarateymi Stjörnunnar, Olgeir Sigurgeirsson og Brynjar Kristmundsson gera fjórar breytingar á liðinu frá síðasta leik. Árni Snær Ólafsson kemur aftur í markið, og Guðmundur Kristjánsson, Birnir Snær Ingason og Alex Þór Hauksson koma allir inn í liðið. Darri Bergmann Gylfason, Ari Leifsson og Ibrahim Turay setjast á bekkinn, en Jóhann Árni er í banni.
Sigurður Höskuldsson þjálfari Þór gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Atli Sigurjónsson og Einar Freyr Halldórsson koma inn í liðið. Fannar Daði Malmquist Gíslason og Þorri Ingólfsson setjast á bekkinn.
Byrjunarlið Stjarnan
- 12. Árni Snær Ólafsson (m)
- 3. Gustav Kjeldsen
- 5. Guðmundur Kristjánsson (f)
- 7. Örvar Eggertsson
- 11. Birnir Snær Ingason
- 14. Bjarki Hauksson
- 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
- 22. Emil Atlason (f)
- 23. Benedikt V. Warén
- 29. Alex Þór Hauksson
- 32. Örvar Logi Örvarsson
Byrjunarlið Þór
- 1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
- 2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
- 5. Yann Emmanuel Affi
- 6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
- 7. Atli Sigurjónsson
- 8. Einar Freyr Halldórsson
- 9. Victor Bertomeu
- 16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
- 22. Ágúst Eðvald Hlynsson
- 23. Kevin Vazquez Comesaña
- 25. Christian Jakobsen
Besta karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 7 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 8 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 9 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 10 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 11 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 12 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |
