Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 23. september 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Rannsaka Twitter færslu Bernardo Silva til Mendy
Bernardo Silva og Benjamin Mendy eru góðir félagar
Bernardo Silva og Benjamin Mendy eru góðir félagar
Mynd: Getty Images
Bernardo Silva, leikmaður Manchester City á Englandi, er nú til rannsóknar hjá enska knattspyrnusambandinu eftir færslu sem hann birti á Twitter.

Silva var öflugur í 8-0 sigri Man City á Watford um helgina en í gær setti hann færslu á Twitter sem fór fyrir brjóstið á mörgum.

Þar birti hann mynd af Benjamin Mendy, liðsfélaga hans hjá Man City, er hann var lítill strákur og við hliðina á myndinni var önnur mynd af fígúru sem er framan á spænska súkkulaðinu Conguitos og spurði svo fylgjendur sína: „Getið hver þetta er?"

Mendy virtist taka vel í færsluna á Twitter en Bernardo eyddi henni skömmu síðar og skrifaði svo aðra færslu þar sem hann lýsti yfir vonbrigðum yfir því að mega ekki grínast í vini sínum.

Enska knattspyrnusambandið rannsakar hvort að um kynþáttafordóma hafi verið að ræða en hér fyrir neðan má sjá skjáskot af færslunni.




Athugasemdir
banner
banner
banner