Fotbolti.net
23.11.20 - 12:59
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Zlatan meiddur aftan í læri - Skoðaður aftur eftir tíu daga

Zlatan Ibrahimovic.

Zlatan Ibrahimovic.

Canon

Mynd: Getty Images

Zlatan Ibrahimovic meiddist aftan í læri gegn Napoli um helgina og ítalskir fjölmiðlar segja að hann fari í aðra skoðun eftir tíu daga og þá kemur í ljós hvað verður.

Svíiinn skoraði tvö mörk í leiknum en þurfti að fara af velli á 79. mínútu.
Sky segir frá því að þessi 39 ára sóknarmaður hafi meiðst aftan í vinstra læri og ekki sé ljóst hversu alvarleg meiðslin eru.

Á næstu tíu dögum á Milan leiki gegn Lille og Celtic í Evrópudeildinni og leik gegn Fiorentina í ítölsku deildinni.

Zlatan hefur skorað í öllum leikjum sem hann hefur spilað í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili, tíu mörk í sex leikjum.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.