Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 24. maí 2022 15:20
Elvar Geir Magnússon
Tchouameni búinn að tilkynna að hann sé að fara til Real Madrid
Mynd: EPA
RMC Sport greinir frá því að Aurelien Tchouameni hafi tilkynnt liðsfélögum sínum hjá Mónakó að hann hafi ákveðið að ganga í raðir Real Madrid.

Samkvæmt fréttum hefur hann komist að samkomulagi um fimm ára samning við Real Madrid sem kaupir hann á um 80 milljónir evra.

Þessi 22 ára franski miðjumaður hefur verið orðaður við ýmis félög, þar á meðal PSG og Liverpool, en hefur ákveðið að semja við Spánarmeistarana.

Tchouameni hefur leikið átta landsleiki fyrir Frakkland og verið í herbúðum Mónakó síðan 2020 þegar hann kom frá Bordeaux.


Athugasemdir
banner
banner