Orri Steinn Óskarsson er á mála hjá FC Kaupmannahöfn í Danmörku. Orri er mikill markaskorari og skoraði hann annað mark U17 ára liðsins sem tryggði sigur gegn Nordsjælland í gær.
Markið tryggði ekki einungis sigurinn heldur einnig svo gott sem titilinn í deildinni því liðið er með þriggja stiga forskot fyrir lokaumferðina sem og stendur auk þess 32 mörkum betur en Midtjylland.
Markið tryggði ekki einungis sigurinn heldur einnig svo gott sem titilinn í deildinni því liðið er með þriggja stiga forskot fyrir lokaumferðina sem og stendur auk þess 32 mörkum betur en Midtjylland.
Markið sem Orri skoraði í gær, korteri fyrir leiksklok. var hans 26. fyrir U17 liðið í vetur. Ofan á það hefur hann skorað tíu mörk með U19 liði félagsins.
Orri Steinn verður sautján ára gamall í haust. Hann er á sínu öðru ári með danska liðinu en hann gekk í raðir félagsins eftir að hafa hjálpað Gróttu að vinna sér sæti í Pepsi Max deildinni í fyrsta skiptið.
Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður Orra, birti ansi skemmtilega mynd á Facebook í gær.
Þar sést Orri vera að fagna markinu og móðir hans, Laufey Kristjánsdóttir, brosir á meðan hún er að tala í símann.
Hún er þar að tala við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara Breiðabliks sem er faðir Orra. Þetta staðfesti Orri við Fótbolta.net í dag.
„Hún er alltaf með textalýsingu fyrir hann," sagði Orri.
Athugasemdir