Byrjunarlið Víkings og Keflavíkur: Sölvi hristir vel í hópnum en bara nauðsynlegar breytingar hjá gestunum

Eiður Orri Ragnarsson er á láni frá Víking og má ekki spila í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valdimar Þór Ingimundarson tekur út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg Jónsson byrjar í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri Ragnarsson er á láni frá Víking og má ekki spila í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld er einn Bestu Deildar karla leikur á dagskrá. Víkingur fær Keflavík til sín á Víkingsvöll á slaginu 20:00.
Keflavík kemur til leiks með góðan sigur á baki en Víkingar töpuðu fyrsta leik sínum í deildinni í síðustu umferð. Ekki við öðru að búast en hörkuleik í kvöld en leikurinn er hluti af 16.umferð Bestu Deild karla.
Sölvi Geir Ottesen gerir mikið af breytingum frá tapinu gegn Þór. Aron Snær kemur í markið og verður með Ekroth og Vatnhamar sér til varnar. Einnig kemur Helgi Guðjóns í vörnina. Daði Berg skoraði gegn Þór og byrjar í kvöld. Óskar Bogga, Stígur Diljan og Karl Friðleifur koma sömuleiðis í byrjunarliðið.
Valdimar Þór Ingimundarson er í banni í vegna uppsafnaðra spjalda og verður ekki með í kvöld.
Haraldur Freyr Guðmundsson gerir þrjár breytingar á sínu liði og eru þær allar svona nauðsynlegar, Eiður Orri Ragnarsson sem skoraði tvö mörk í síðasta leik má ekki spila gegn Víking því hann er á láni frá þeim. Muhamed Alghoul er síðan að taka út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda, en hann skoraði einnig í síðasta leik. Síðan meiddist Anton Kralj það er ljóst að hann verður ekki meira með Keflavík í sumar. Inn fyrir þá koma Axel Ingi, Dagur Ingi og Ásgeir Páll.
Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 4. Peter Oliver Ekroth (f)
- 6. Gunnar Vatnhamar
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 18. Daði Berg Jónsson
- 19. Stígur Diljan Þórðarson
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 30. Sveinn Margeir Hauksson
Byrjunarlið Keflavík
- 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
- 3. Axel Ingi Jóhannesson
- 4. Ígnacio Heras Anglada
- 6. Sindri Snær Magnússon (f)
- 7. Dagur Ingi Valsson
- 8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
- 10. Stefan Alexander Ljubicic
- 14. Marin Mudrazija
- 20. Marin Brigic
- 21. Alpha Conteh
- 22. Ásgeir Páll Magnússon

Valdimar Þór Ingimundarson tekur út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg Jónsson byrjar í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
