24.07.26 - 10:58
Kári Snorrason
Skörð höggvin í lið Keflavíkur fyrir kvöldið

Má ekki spila í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur takmarkað æft í aðdraganda leiksins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alghoul í leikbanni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Má ekki spila í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík mætir Íslandsmeisturum Víkings á Víkingsvelli í Bestu deildinni í kvöld. Stór skörð eru höggvin í lið Keflavíkur fyrir leikinn.
Eiður Orri Ragnarsson verður ekki með í kvöld en hann fór á kostum í síðustu umferð þar sem hann skoraði tvö glæsimörk gegn ÍA í 5-2 sigri Keflavíkur.
Hann var keyptur til Víkings fyrr í sumar og klárar tímabilið með Keflavík á láni. Í samningi Eiðs er samkomulag um að hann megi ekki leika með liðinu gegn Víkingi.
Þá verður Muhamed Alghoul ekki með liðinu þar sem hann er að taka út leikbann. Í liði Víkings tekur Valdimar Þór Ingimundarson sömuleiðis út leikbann vegna uppsafnaðra spjalda.

Anton Kralj meiddist á ökkla í leiknum gegn ÍA og verður ekki meira með í sumar. Hann er farinn aftur til heimalandsins, Svíþjóðar.
Markvörðurinn Ásgeir Orri Magnússon hefur takmarkað æft í aðdraganda leiksins en búist er við að hann verði þó á milli stanganna í kvöld. Hann meiddist á öxl í leiknum gegn ÍA en náði að klára leikinn.
Þá fór Davíð Helgi Aronsson nýverið út til Lyngby en hann var á láni í Keflavík frá Víkingi. Hefði hann verið áfram hjá Keflvíkingum hefði hann þó ekki spilað leikinn þar sem félögin voru með samkomulag um að hann myndi ekki spila gegn Víkingi.
föstudagur 24. júlí
Besta karla
20:00 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)