24.09.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
Kemur ekki til greina að selja Wirtz

Florian Wirtz.

Mynd: EPA

Julian Alvarez.

Mynd: EPA

Alaba er búinn í læknisskoðun hjá Udinese.

Mynd: EPA

Florian Wirtz.

Mynd: EPA

Það verður leikið í Þjóðadeildinni í kvöld en bitastæðasti leikurinn er klárlega í Hollandi þar sem Þýskaland er í heimsókn. En hér er slúðurpakki dagsins í boði Powerade.
Það kemur ekki til greina hjá Liverpool að selja þýska miðjumanninn Florian Wirtz (23) til Bayern München í janúarglugganum. Þýska stórliðið myndi aðeins íhuga að gera tilboð næsta sumar ef franski kantmaðurinn Michael Olise (24) hafnar nýjum samningi. (Christian Falk)
Barcelona hefur útilokað að ganga frá kaupum á sóknarmanninum Julian Alvarez (24) frá Atletico Madrid í janúar. Argentínumaðurinn bíður þess að sjá hvort Paris St-Germain eða Arsenal leggi fram tilboð í hann, eða hvort hann eigi að vera áfram í Madríd. (Fichajes)
Ensku landsliðsmiðjumennirnir Alex Scott (23) hjá Bournemouth og Adam Wharton (22) hjá Crystal Palace eru helstu skotmörk Chelsea en félagið hefur ekki lengur áhuga á Lamine Camara (22) hjá Mónakó. (CaughtOffside)
Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw (31) gæti yfirgefið Manchester United þegar núverandi samningur hans við félagið rennur út næsta sumar. (Teamtalk)
Ítalska félagið Udinese er að fá austurríska varnarmanninn David Alaba (34) en hann yfirgaf Real Madrid í sumar. Hann hefur lokið læknisskoðun. (Fabrizio Romano)
Enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon (24) segir það ekki einkenni Englands að stýra leikjum og að liðið geti unnið stórmót ef það hættir að reyna að spila eins og Spánn. (BBC)
Aston Villa hefur mikinn áhuga á að verðlauna argentínska miðjumanninn Emi Buendía (29) fyrir góða frammistöðu með því að bjóða honum nýjan samning. (Mail)