HM: Brasilía og Marokkó áfram - Vinicius með tvennu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Keppni í C-riðli á HM lauk í kvöld þar sem Brasilía og Marokkó tryggðu sér farseðilinn í 32-liða úrslitin.
Vinicius Junior kom Brasilíu yfir gegn Skotlandi snemma leiks eftir mikil vandræði í öftustu línu hjá Skotum. Hann skoraði síðan aftur en markið var dæmt af þar sem hann var talinn brotlegur en það var umdeildur dómur.

Hann bætti hins vegar upp fyrir það og skoraði annað mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Hann skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Bruno Guimaraes.
Það var síðan Matheus Cunha sem innsiglaði sigurinn eftir klukkutíma leik. Brasilía endar á toppnum með sjö stig en Skotar í þriðja sæti með þrjú stig og ekki ljóst hvort liðið komist áfram.
Marokkó vann Haítí í fjörugum leik. Wilson Isidor kom Haítí í 2-1 með stórkostlegu marki, fast skot fyrir utan teiginn. Ismael Saibari jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks og Soufiane Rahimi kom Marokkó yfir áður en Gessime Yassine innsiglaði sigurinn.
Marokkó endar í 2. sæti með sjö stig en Haítí á botninum án stiga.
Skotland 0 - 3 Brasilía
0-1 Vinicius Junior ('7 )
0-2 Vinicius Junior ('45 )
0-3 Matheus Cunha ('60 )
Marokkó 4 - 2 Haítí
0-1 Bono ('10 , sjálfsmark)
1-1 Achraf Hakimi ('39 )
1-2 Wilson Isidor ('43 )
2-2 Ismael Saibari ('45 )
3-2 Soufiane Rahimi ('78 )
4-2 Gessime Yassine ('89 )