Fotbolti.net
25.08.19 - 12:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Championship: Swansea kláraði Birmingham í seinni hálfleik

Borja Baston er markahæstur í Championship deildinni.

Borja Baston er markahæstur í Championship deildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Swansea 3 - 0 Birmingham</b>
1-0 Kyle Naughton ('63 )
2-0 Bersant Celina ('68 )
3-0 Borja Baston ('75 , víti)

Swansea tók á móti Birmingham í eina leik dagsins í ensku Championship deildinni. Leikurinn var lokaleikur 5. umferðar deildarinnar.
Staðan var markalaus fram á 63. mínútu þegar Kyle Naughton, varamaður Swansea, kom heimamönnum yfir með hörkuskoti.

Swansea bætti við öðru marki á 68. mínútu þegar Bersant Celina eftir flottan undirbúning frá Van der Hoorn sem vann boltann af leikmanni Birmingham áður en hann keyrði upp völlinn.

Borja Baston innsiglaði svo sigurinn úr vítaspyrnu þegar hann skoraði sitt fimmta mark í fimm leikjum fyrir Swansea.

Swansea er með sigrinum komið upp að hlið Leeds á toppi deildarinnar (bæði lið með 13 stig) en Birmingham er með sjö stig í 15. sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.