Fotbolti.net
25.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Liverpool og Arsenal fylgjast með samningsviðræðum Schade

Liverpool og Arsenal fylgjast með samningsviðræðum Schade
Canon

Mynd: EPA

Brentford er að hefja samningsviðræður við kantmanninn Kevin Schade sem á tæp tvö ár eftir af samningi við félagið.
Klopp velur 16 nýliða í 44 manna hóp
TENGT EFNI

Klopp velur 16 nýliða í 44 manna hóp

Stórveldin Arsenal og Liverpool hafa sýnt Schade mikinn áhuga og eru að fylgjast með stöðu hans hjá Brentford.

Félögin vildu kaupa Schade í sumar en Brentford neitaði að selja eftir að hafa misst Yoane Wissa, Bryan Mbeumo, Christian Nörgaard og Jordan Henderson í síðustu tveimur sumargluggum.

Brentford hefur farið vel af stað á nýju úrvalsdeildartímabili og er Schade kominn með þrjú mörk í fimm úrvalsdeildarleikjum. Brentford er í fjórða sæti, með 9 stig eftir 5 fyrstu umferðirnar.

Chelsea og Tottenham eru einnig meðal áhugasamra félaga en Arsenal og Liverpool eru sögð leiða kapphlaupið.

Brentford keypti Schade fyrir 20 milljónir punda í júní 2023 og er að bjóða honum talsvert betri kjör.

Schade er 24 ára gamall og var í byrjunarliði Þýskalands í fyrsta leik Jürgen Klopp sem landsliðsþjálfara í gærkvöldi.
Liverpool og Arsenal fylgjast með samningsviðræðum Schade
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.