Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. nóvember 2021 14:42
Elvar Geir Magnússon
Vanda: Vil ekki og get ekki tjáð mig um persónuleg mál Eiðs
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að tilkynnt var að Eiður Smári Guðjohnsen væri hættur sem aðstoðarþjálfari landsliðsins.

Vanda hefur ekki viljað svara spurningum fjölmiðlamanna en sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu.

Þar kemur meðal annars fram að Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari stýri ferðinni í leit að nýjum aðstoðarmanni. Vonast sé til að finna réttan aðila við hlið Arnars.

Yfirlýsing frá Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanni KSÍ

Líkt og fram hefur komið þá tóku stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen sameiginlega ákvörðun um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Í kjölfarið hafa fjölmiðlar leitað svara um málið.

Af sjálfsagðri virðingu við einkalíf Eiðs Smára þá höfum við, ég sem formaður KSÍ, stjórn og starfsfólk KSÍ, farið þá leið að tjá okkur ekki í smáatriðum um tildrög starfsloka hans. Við viljum ekki og getum ekki rætt hans persónulegu mál í fjölmiðlum. Þar þarf hann að stjórna ferðinni sjálfur.

Ákvörðun sem þessi er alltaf þungbær, á sér langan aðdraganda og er ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli. Aftur óskum við Eiði velfarnaðar og þökkum honum góð störf.

Stjórn KSÍ hefur þegar rætt og mun ræða áfram hvort ástæða sé til þess að hætta að veita hóflega áfengi að verkefnum loknum.

Nú tekur við vinna við leit að nýjum aðstoðarþjálfara þar sem þjálfari liðsins, Arnar Þór Viðarsson, mun að sjálfsögðu ráða ferðinni. Vonandi gengur sú leit hratt og örugglega fyrir sig og við finnum réttan aðila í starfið við hlið Arnars til að leiða áframhaldandi uppbyggingu á þessu unga og spennandi landsliði.

Kveðja,
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ

Athugasemdir
banner
banner
banner