Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. janúar 2021 21:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enski bikarinn: Fjórðu umferð lokið - Svona eru 16-liða úrslitin
Wilshere skoraði fyrir Bournemouth.
Wilshere skoraði fyrir Bournemouth.
Mynd: Getty Images
Bournemouth 2 - 1 Crawley Town
1-0 Jack Wilshere ('24 )
1-1 Tom Nichols ('59 )
2-1 Joshua King ('65 )

Síðasti leikurinn í 32-liða úrslitum enska FA-bikarsins fór fram í kvöld þegar Bournemouth tók á móti Crawley Town.

Jack Wilshere, sem er nýgenginn í raðir Bournemouth, kom þeim yfir á 24. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik.

Crawley, sem er í D-deild, tókst að jafna metin á 59. mínútu en sex mínútum síðar kom Norðmaðurinn Joshua King heimamönnum Bournemouth í forystu.

Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 2-1 fyrir Bournemouth. Þá er ljóst hvernig 16-liða úrslitin verða. Þau fara fram í febrúar.

16-liða úrslitin:
Burnley - Bournemouth
Man Utd - West Ham
Sheffield United - Bristol City
Wolves - Southampton
Barnsley - Chelsea
Everton - Tottenham
Swansea - Man City
Leicester - Brighton
Athugasemdir
banner
banner
banner